Reðurristur fjarlægðar úr hlíðum Helgafells Vésteinn Örn Pétursson skrifar 16. júlí 2019 15:00 Hér má sjá hluta krotsins sem nú hefur verið afmáð. Typpapyndir, nöfn og misgáfuleg skilaboð eru algengt viðfangsefni skemmdarvarganna. Facebook
Óskar Sævarsson, landvörður í Reykjanesfólkvangi, segir skemmdarverk og krot í Helgafelli, sem í dag var unnið að því að afmá, séu mörg mun eldri heldur en þau sem greint var frá að dúkkað hefðu upp í fjallinu í síðasta mánuði. Með stórri limmynd sem teiknuð var á fjallið hafi mælirinn hins vegar orðið fullur. Með dyggri hjálp Umhverfisstofnunar og Veraldarvina hafi hátt í 80 ummerki um skemmdarverk verið afmáð „Þetta er ekkert nýtt. Þetta var bara orðið allt of mikið. Svo bara sprakk þetta með typpamyndinni,“ segir Óskar en hann segir að velsæminu hafi einfaldlega verið ofboðið þegar stærðarinnar typpamynd var teiknuð á fjallið. Í dag og í gær hefur vaskur hópur fólks unnið að því að afmá ummerki um skemmdarverk úr hlíðum Helgafells. „Við fórum í dag og brugðumst við þessu. Umhverfisstofnun kærði verknaðinn og þar með er það komið í ákveðið ferli, eitt af því er að sinna viðhaldi, af því þetta er nú friðlýst svæði. Þá fékk ég með dyggri aðstoð Umhverfisstofnunar, vaskan hóp af fólki,“ segir Óskar. Auk hóps frá Umhverfisstofnun eru um 20 krakkar frá Veraldarvinum, sem starfa á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Það má því segja að það hafi verið valinn maður í hverju rúmi í aðgerðum dagsins. „Við skiptum okkur í tvennt og afmáðum 60 til 80 ummerki. Sum þeirra voru ný, en önnur voru djúp og gömul.“ Óskar segir að tímabært hafi verið að ráðast í aðgerðir sem þessar. Krotið um allt fjall hafi einfaldlega verið orðið allt of mikið, dreift um allt fjallið.Þessi limur er aðeins eitt fjölmargra dæma um misskemmtilegar myndir og skilaboð sem rist hafa verið í fjallið.FacebookPrófmál inn í framtíðina Óskar segir svona viðhaldsaðgerðir almennt ekki vera í verkahring landvarða eða annarra sem fara með umsjá friðlýstra svæða. „Þetta var bara orðið of mikið. Þetta verður væntanlega prófmál inn í framtíðina fyrir þá sem koma að svona málum, skipulagningu, þá sem sjá um friðlýst svæði, landverði. Hvort það eigi að vera í þeirra verkahring að afmá. Það er nokkuð ljóst að ef að við stöndum fólk að verki, þá munum við kæra,“ segir landvörðurinn. Hann segir þær aðferðir sem notast er við þegar skemmdarverkin eru afmáð úr fjallshlíðunum vera einfaldar. „Þetta er mjúkt, opið, slípað móberg undan veðri og vindum. Það rigndi síðustu tvo daga, sem gerði þetta enn einfaldara,“ segir Óskar og upplýsir blaðamann í kjölfarið um að notast sé við öfluga vírbursta sem beitt er með handafli.Óskar Sævarsson, landvörður í Reykjanesfólkvangi.Grindavíkurbær„Klórum þetta hægt og rólega upp, þannig að ekki verði með nokkru móti hægt að greina hvað þarna stóð.“ Þó að ummerki um skemmdarverkin séu mögulega ekki alveg á braut kveðst Óskar litlar áhyggjur hafa af því, þar sem íslenski veturinn, veður og vindar, komi til með að hjálpa til með slíkt þegar sumri tekur að halla. Hópurinn hóf vinnu um klukkan 10 í morgun og var á leið niður af fjallinu þegar blaðamaður heyrði í Óskari á þriðja tímanum í dag. Þakkar Umhverfisstofnun fyrir veitta aðstoð Óskar fer einn með landvörslu í Reykjanesfólkvangi, en það er gríðarstórt svæði. „Ég nýt þess núna undanfarin ár að fá mjög góða aðstoð frá Umhverfisstofnun,“ segir Óskar og segist um leið biðja að heilsa vinum sínum í Umhverfisstofnun.
Hafnarfjörður Umhverfismál Tengdar fréttir Íhuga að kæra náttúruspjöll á Helgafelli til lögreglu Gerðu sér að leik að krafsa nöfn og útlínur getnaðarlima í linan jarðveg Helgafells. 18. júní 2019 15:08 Helgafellskrotið tilkynnt til lögreglu Umhverfisstofnun lýsir krotinu inn í mjúkt móbergið í Helgafelli við Hafnarfjörð sem alvarlegum náttúruspjöllum. 19. júní 2019 10:25 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Íhuga að kæra náttúruspjöll á Helgafelli til lögreglu Gerðu sér að leik að krafsa nöfn og útlínur getnaðarlima í linan jarðveg Helgafells. 18. júní 2019 15:08
Helgafellskrotið tilkynnt til lögreglu Umhverfisstofnun lýsir krotinu inn í mjúkt móbergið í Helgafelli við Hafnarfjörð sem alvarlegum náttúruspjöllum. 19. júní 2019 10:25