Þrír handteknir vegna gruns um ölvunarakstur Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar 16. júní 2019 09:18 86 mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í gær til fimm í nótt. Vísir/Vilhelm
Nokkrir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en alls voru 86 mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í gær til fimm í nótt. Í hverfi 101 voru höfð afskipti af konu sem borgaði ekki fyrir leigubifreið og verður hún kærð fyrir fjársvik. Þar var kona einnig handtekin grunuð um líkamsárás gegn dyraverði, hún neitaði að segja til nafns og gefa upp hver hún væri og var hún því vistuð í fangageymslu. Í hverfi 108 hafði lögreglan afskipti af manni annarlegu ástandi þar sem hann var að skemma tré og staura við skóla í hverfinu. Verður hann kærður fyrir eignaspjöll og brot á lögreglusamþykktum í kjölfarið. Í hverfi 210 varð umferðaróhapp á áttunda tímanum í gærkvöldi. Ökumaður ók bifreið sinni á grindverk. Ekki urðu slys á fólki en fjarlægja þurfti bifreiðina með dráttarbifreið á vettvangi. Í gærkvöldi var umferðardeild lögreglunnar við hraðamælingar á Suðurlandsvegi á Sandskeiði. Fjórtán ökumenn voru stoppaðir þar fyrir hraðakstur. Einnig var eftirlit á Hafnarfjarðarvegi þar sem kannað var með ástanda ökumanna og ökuréttindi þeirra. Afskipti voru höfð af 120 ökumönnum og voru þrír af þeim handteknir grunaðir um ölvun við akstur. Voru þeir látnir lausir eftir skýrslutöku. Einnig sinntu lögreglumenn í öllum hverfum mörgum kvörtunum vegna hávaða frá tónlist í heimahúsum, framkvæmdahávaða á vinnustöðum og frá skemmtistöðum.
Lögreglumál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira