KA-maður og Þórsari berjast um fyrstu pylsuna þegar Bæjarins beztu opna á Akureyri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. júní 2019 11:10 Mynd sem tekin var af vagninum þegar flutningarnir hófust norður í nótt. guðrún kristmundsdóttir
Hallgrímur Jónasson, KA-maður, og Þórsarinn Jóhann Hannesson munu berjast um fyrstu pylsuna þegar Bæjarinz bestu pylsur opna í fyrsta sinn á Akureyri. Staðurinn opnar á Ráðhústorginu klukkan 13 á morgun, laugardag, að sögn Guðrúnar Kristmundsdóttur, eiganda Bæjarins beztu. Þetta er í fyrsta sinn sem Bæjarins beztu opna úti á landi en nokkrir staðir eru á höfuðborgarsvæðinu, þeirra þekktastur án efa vagninn í Tryggvagötu. Guðrún segir að svipaður vagn hafi verið smíðaður fyrir staðinn og á Akureyri og var hann fluttur norður í nótt. Barði Jónsson, Akureyringur, og fjölskylda kemur til með að reka staðinn. „Hann hafði fyrst samband fyrir nokkrum árum þannig að þetta er búið að vera lengi í bígerð,“ segir Guðrún. Opnunartíminn verður frá 11 til 20 og næturopnun um helgar. „Við ætlum að halda þessu svolítið opnu og sjá hvernig þetta þróast, eins og við höfum gert með alla staðina okkar. Við höfum líka alltaf haft það þannig að þótt það sé ekki mikið að gera klukkan 11 á morgnana þá er þetta bara þjónusta sem er í boði,“ segir Guðrún.
Akureyri Matur Veitingastaðir Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira