Tveggja ára laus í fangi föður síns Birgir Olgeirsson skrifar 8. júní 2019 07:15 Talsverður erill var hjá lögreglu. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt. Þar á meðal hafði lögreglan afskipti af bifreið rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi þar sem tveggja ára barn sat laust í fangi föður síns í aftursæti bifreiðarinnar. Enginn öryggisbúnaður var fyrir barnið í bifreiðinni. Rétt eftir miðnætti var karlmaður í annarlegu ástandi handtekinn í miðborginni eftir ítrekuð afskipti lögreglu þar sem hann var að ógna fólki og berja frá sér með hækju sem hann hafði meðferðis. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu meðan ástand hans lagast. Á þriðja tímanum í nótt var karlmaður handtekinn í hverfi 101 grunaður um eignaspjöll en maðurinn hafði verið að reyna að brjótast inn í bifreið og var búinn að skemma bifreiðina. Maðurinn er einnig grunaður um hylmingu og brot á vopnalögum. Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Klukkan fjögur í nótt var karl rotaður og var árásaraðili handtekinn á vettvangi. Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Á annan tug ökumanna var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna en einn af þeim var ökumaður í Hraunbæ. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reyndi að aka á brott en hafnaði á kantstein, affelgaði dekk og neyddist til að stöðva. Hann reyndi að hlaupa á brott en var fljótlega handtekinn. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og fíkniefna, ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum og fara ekki að fyrirmælum lögreglu. 3 farþegar voru í bifreiðinni og fóru þeir sína leið að lokinni skoðun.
Lögreglumál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Sjá meira