Ágúst og félagar unnu eftir framlengingu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. mars 2019 17:45 Ágúst Elí Björgvinsson. Vísir/EPA
Ágúst Elí Björgvinsson og félagar í Sävehof tóku heimaleikjaréttinn af Malmö í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Malmö endaði í öðru sæti deildarinnar en Sävehof í því sjöunda og því byrjaði Malmö á heimavelli í einvíginu. Heimamenn náðu að koma sér í fjögurra marka forystu þegar fyrri hálfleikur var rétt hálfnaður. Gestirnir unnu sig hægt og rólega til baka inn í leikinn og Viktor Ottosson jafnaði rétt fyrir hálfleik. Staðan var 13-13 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Seinni hálfleikurinn var í járnum og aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Robert Månsson jafnaði leikinn fyrir heimamenn þegar 14 sekúndur voru eftir, Sävehof fékk eina sókn til þess að sækja sigurinn en skot Oskar Sunnefeldt var varið og því þurfti að framlengja. Sävehof tók yfirhöndina í framlengingunni og voru því skrefinu á undan heimamönnum. Heimamenn skoruðu bara eitt mark á fyrstu sjö mínútum framlengingarinnar og gestirnir komust í þriggja marka forystu. Framlengingunni lauk með þriggja marka sigri Sävehof, 28-25. Þeir eru því komnir með yfirhöndina í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit. Ágúst Elí átti góðan dag í marki Sävehof, hann varði 15 skot sem gerði rétt undir 40 prósenta markvörslu.
Handbolti Mest lesið Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Enski boltinn Líbönsk landsliðskona lífshættulega slösuð eftir árás Ísraelsmanna Fótbolti Eldræða Lárusar Orra: Þurfum ferskan þjálfara inn með ástríðu Fótbolti „Mikilvægt að sýna fólki að ég er ekki brjálæðingur“ Fótbolti Lélegasta landslið heims fékk flestar heimsóknir eftir sögulegan sigur Fótbolti Nefna völl eftir nemanda sem lést á golfvelli Sport Gekk út eftir afar vandræðalegan tuttugu sekúndna blaðamannafund Fótbolti X eftir landsleikinn: Skiptar skoðanir um Hareide og hettan hans Bellamy Fótbolti Einkunnir Íslands: Vafasöm varnarlína Fótbolti Messi jafnaði heimsmet með frábærum hætti Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Sjá meira