Hræðist ekki að gera mistök Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 4. mars 2019 12:00 Ari segir Eurovision vera einstakan stökkpall og að nú sé hann að upplifa og sjá drauma sína rætast. Fréttablaðið/Ernir
Ari Ólafsson segist hafa fundið sinn innri mann við sigurinn í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Líf hans hafi snúist á hvolf, lífsreynslan hafi verið jákvæð og hann sé nú að upplifa drauma sína. „Dýrmætasti lærdómurinn var um sjálfan mig. Ég lærði hvað býr innra með mér og að ég er óhræddur við að gera mistök. Ég var oftsinnis spurður hvernig ég þyrði að stíga á svið og syngja frammi fyrir milljónum manna en hafði ekki svar við því þá. Ég fann aldrei fyrir hræðslu, né velti mér upp úr því hvort ég ynni eða gerði mistök, og veit nú að í mér, sem og öllum, býr kraftur sem kemur okkur alla leið. Það eina sem til þarf er að opna sig gagnvart því. Augu mín opnuðust líka fyrir því að ég var ekki lengur strákur. Ég var orðinn ungur maður sem gerir allt 100 prósent og gefst aldrei upp. Það er stóri lærdómurinn; að gefast ekki upp og gefa sig aldrei í efasemdirnar,“ segir Ari Ólafsson um þá lífsreynslu að vinna Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra og fara fyrir Íslands hönd í Eurovision. Ari segir óraunverulegt að ár sé komið frá því að hann stóð uppi sem sigurvegari. „Það er skrýtið hvað þetta hefur liðið hratt og hvað árið 2018 var bilað fyrir mig. Líf mitt breyttist gífurlega og ég er nú að uppskera eftir alla þá vinnu sem ég hef lagt í söng og tónlist. Ég fékk að sýna mig frammi fyrir íslensku þjóðinni, allri Evrópu og öllum heiminum, sem var mér afar mikilvægt. Núna veit þjóðin hver ég er og getur fylgst með mér í framtíðinni,“ segir Ari kátur.Blómstrar í Lundúnum Ari býr nú í Lundúnum og lærir söng og tónsmíðar við hinn virta tónlistarháskóla Royal Academy of Music. „Ég er enn í skýjunum því beint á eftir Eurovision flutti ég til London og byrjaði nýtt ævintýri þar. Eftir Söngvakeppnina byrjaði boltinn að rúlla hratt og ég er nú að uppfylla drauma mína. Eftir grunnnám í Royal Academy of Music hef ég hug á að halda þar áfram í meistaranámi í óperusöng eða við söngleikjadeildina því ég vil gera tónlistina að lifibrauði mínu,“ segir Ari sem er strax byrjaður að safna eigin tónsmíðum í sarpinn. „Ég er mikið í því að semja og uppfullur af hugmyndum sem vonandi enda á plötu einn daginn. Það er erfitt að skilgreina tónlistina sem ég sem. Ég er auðvitað nýgræðingur í tónsmíðum en vil búa til nýja tónlist sem vekur miklar tilfinningar hjá fólki. Ætli megi ekki flokka það sem popp með „psychedelic“ og „indie“-áhrifum,“ útskýrir Ari.Ari hefur enn mikið dálæti á sigurlaginu sem hann flutti í fyrra og segir tónlist snúast um að sameinast á tilfinningasviðinu.Besta partí Evrópu Ari stígur á svið í beinni útsendingu úrslitaþáttar Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fer í Laugardalshöll í kvöld. „Ég er ákaflega spenntur en vil ekki gera upp á milli laganna sem keppa til úrslita. Mér finnst úrslitin vera rétt og þetta eru þau fimm lög sem ég spáði að kæmust í úrslit. Ég er því ótrúlega spenntur að sjá hverjir vinna,“ segir Ari sem gefur sigurvegurum kvöldsins sama veganesti og Svala Björgvins, sigurvegari ársins 2017, gaf honum í fyrra. „Það er að njóta augnabliksins og alls sem er. Eurovision er yfirþyrmandi stór viðburður og allt sem í honum felst, en náttúrlega langskemmtilegasta partí Evrópu. Það er gott að ganga hægt um gleðinnar dyr en muna að taka allt inn og njóta þess til fulls sem í vændum er. Ég veit að Hera og Friðrik Ómar vita þetta bæði sem fyrrverandi sigurvegarar. Sjálfur leit ég aldrei á Eurovision sem keppni heldur hátíð þar sem fólk kemur saman úr öllum heimshornum og á sínum forsendum, sama hvernig það er á litinn eða hver kynhneigð þess er. Eurovision býður fjölbreytileikanum heim og þar höfum við séð allt. Það finnst mér fallegt. Það geta allir verið þeir sjálfir og allir átt sinn stað.“Gott að gráta Ari segir Eurovision stóran stökkpall fyrir þá sem vilja leggja tónlistina fyrir sig. „Allt í kringum Söngvakeppnina og Eurovision var mjög góður skóli, ekki síst fyrir mig sem var bara 19 ára þegar ég tók þátt og vann. Þessi reynsla hefur gert mikið fyrir mig sem listamann og ég hef fengið ótal tækifæri sem ég hef nýtt mér sem listamaður. Þótt Lundúnabúar kveiki ekki endilega strax á perunni að ég hafi tekið þátt í Eurovision er tónlistarsenan þar stór og það opnast margar dyr þegar kemur að áheyrnarprufum og listaheiminum þegar maður bendir á YouTube og nafn mitt er slegið inn. Ég sé því ekkert nema jákvætt við þátttöku í Eurovision.“ Lagið Our Choice, sem vann Söngvakeppnina og sigraði hjörtu landsmanna í fyrra, segir Ari að sé enn í miklum metum hjá honum. „Ég hefði tæplega tekið að mér að syngja lagið ef ég hefði ekki verið hrifinn. Það er erfitt og krefst hæfni að eiga við það og fara upp um tvær og hálfa áttund. Það sem heillaði mig mest var boðskapurinn og að það vakti fallegar og jákvæðar tilfinningar. Um það finnst mér tónlist snúast, að koma fólki saman, jafnvel milljónum saman eins og í Eurovision, og sameinast undir einni tilfinningu og sameiginlegri upplifun. Það er svo fallegt og það var ástæðan fyrir því að ég þurfti að taka þetta lag.“Mörgum er minnisstætt þegar Ari tárfelldi þegar hann stóð uppi sem sigurvegari í fyrra. „Ég er ófeiminn við að sýna tilfinningar og lærði ungur hjá mömmu og pabba að leyfa mér að finna fyrir tilfinningum mínum. Maður skuldar sjálfum sér það sem manneskju. Það er jafn eðlilegt að hlæja og gráta og það besta í heimi finnst mér að hlæja mikið og gráta þegar ég þarf. Eftir grátinn líður manni betur og maður hefur hleypt geðshræringunni út. Það er heilbrigð útrás fyrir tilfinningarnar.“
Birtist í Fréttablaðinu Eurovision Tengdar fréttir Gleðitár Ara vekja athygli út fyrir landsteinana Ari Ólafsson söng sig inn í hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar í söngvakeppninni. 11. mars 2018 15:33 „Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ "Mér líður alveg ótrúlega vel. Ég toppaði mig alltaf eftir hvern einsta flutning og ég gat ekki gert meira,“ segir Ari Ólafsson sem flutti lagið Our Choice í fyrri undanriðli keppninnar í Lissabon í kvöld og var ekki á meðal þeirra tíu laga sem komust áfram. 8. maí 2018 23:00 Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið Fleiri fréttir Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Sjá meira
Gleðitár Ara vekja athygli út fyrir landsteinana Ari Ólafsson söng sig inn í hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar í söngvakeppninni. 11. mars 2018 15:33
„Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ "Mér líður alveg ótrúlega vel. Ég toppaði mig alltaf eftir hvern einsta flutning og ég gat ekki gert meira,“ segir Ari Ólafsson sem flutti lagið Our Choice í fyrri undanriðli keppninnar í Lissabon í kvöld og var ekki á meðal þeirra tíu laga sem komust áfram. 8. maí 2018 23:00