Raunveruleg ógn við heilbrigði Florealis kynnir 14. febrúar 2019 10:00 ,,Til að geta dregið úr notkun sýklalyfja þurfa aðrar öruggar leiðir að vera í boði,” segir Sandra Mjöll, doktor í líf- og læknavísindum og vörustjóri Florealis. Fyrirtækið hefur markaðsett viðurkennt jurtalyf gegn þvagfærasýkingum. Leifur Wilberg
Sýklalyfjaónæmi hefur aukist gífurlega á undanförnum árum og er orðin ein stærsta ógnin við heilbrigði sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Ástæðurnar má rekja til ógætilegrar notkunar sýklalyfja bæði í matvælaiðnaði og læknisfræði. Nauðsynlegt er að draga úr óþarfa notkun sýklalyfja eins og hægt er til að stemma stigu við fjölgun ónæmra stofna baktería. Best er að reyna að fyrirbyggja sýkingar eða nota aðrar leiðir til að meðhöndla vægar sýkingar áður en þær komast á það stig að sýklalyfja gerist þörf.Einstök lausn án sýklalyfjaFlorealis býður uppá jurtalyfið Lyngonia. Lyfið er eina viðurkennda meðferðin við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum sem ekki er hefðbundið sýklalyf. Jurtalyf eru mikilvægur kostur í baráttunni við sýklalyfjaónæmi. Ólíkt hefðbundnum lyfjum innihalda þau virk efni, unnin beint úr plöntum, sem hafa að geyma blöndu flókinna efnasambanda en það gerir bakteríum erfitt að mynda ónæmi. ,,Okkur er mjög umhugað um þetta málefni og það er ein ástæða þess að við ákváðum að setja lyfið Lyngonia á markað. Til að geta dregið úr notkun sýklalyfja þurfa aðrar öruggar leiðir að vera í boði,” segir Sandra Mjöll, vörustjóri hjá Florealis og doktor í líf- og læknavísindum. ,,Þvagfærasýkingar eru mjög algengar hjá konum og hátt hlutfall þeirra sem fá slíkar sýkingar fá þær endurtekið. Þetta veldur því að hluti kvenna þarf ítrekað að taka sýklalyf til að draga úr einkennum. Það eykur verulega líkur á því að sýklalyfjaónæmi þróist og þá hætta lyfin að virka,” heldur Sandra áfram. Lyngonia.Geta komist hjá notkun sýklalyfjaLyngonia er jurtalyf sem unnið er úr stöðluðum útdrætti úr sortulyngi. ,,Lyngonia inniheldur efnið arbútín sem er skilið út í þvagi í háum styrk. Ef sýking er til staðar þá er arbútínið klofið í niðurbrotsefni sem hefur bakteríuhemjandi verkun. Bakteríurnar eitra því fyrir sjálfum sér.” Lyngonia er ætlað konum sem fá endurteknar þvagfærasýkingar þegar búið að útiloka alvarlega kvilla af lækni. Lyfið vinnur gegn sýkingunni og einkennum hennar t.d. bruna við þvaglát og ítrekaða þvagþörf. Lyfið fæst án lyfseðils í öllum apótekum og best er að byrja að taka það um leið og einkenna verður vart. ,,Lyngonia er virk meðferð við þvagfærasýkingu og á ekki að taka sem fyrirbyggjandi meðferð. Lyfið byrjar að virka strax og ættu einkenni að hverfa á fjórum dögum. Þetta er frábær kostur fyrir þær konur sem eru endurtekið með slíkar sýkingar og þær geta jafnvel komist hjá notkun sýklalyfja ef Lyngonia er notað rétt,” segir Sandra að lokum.Gagnlega upplýsingar:Lyngonia fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Lyngonia er jurtalyf sem hefð er fyrir og ætlað konum eldri en 18 ára. Notkun er 2 töflur 2-4 sinnum á dag og ekki skal nota lyfið lengur en viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun skal hafa samband við lækni. Ekki á að nota Lyngonia ef truflun er á nýrnastarfsemi. Tilgreindar ábendingar eru eingöngu byggðar á langri sögu um notkun lyfsins. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is og á www.florealis.is/lyngoniaÞessi kynning er unnin í samstarfi við Florealis
Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki Menning Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Lífið Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Fleiri fréttir Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina Sjá meira