Fær nafn átta árum eftir opinberun Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2026 18:11 Nafn sjötta Elder Scrolls leiksins er Sentinel. Næsti leikurinn í hinni gífurlega vinsælu leikjaseríu Elder Scrolls hefur loksins fengið nafn. Tilvist leiksins var fyrst opinberuð með stuttri stiklu í júní 2018 en síðan þá hafa litlar sem engar upplýsingar um þennan sjötta leik seríunnar litið dagsins ljós. Þar til í dag.
Forsvarsmenn Bethesda Softworks birtu í dag myndband þar sem forstjórinn Todd Howard fór yfir fjörutíu ára sögu fyrirtækisins og gamla leiki þess. Í lokin opinberaði hann svo nafnið „Sentinel“ fyrir ES6. Litlar viðbótarupplýsingar fylgja titlinum aðrar en tilvísun í orð mölfluguprests frá Hammerfell. Mögulegt er að stikla fyrir leikinn verði sýnd á Game Awards-viðburðinum í desember. Ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum. Sentinel er höfuðborg eins af konungsríkjum Alik‘r eyðimerkurinnar í Hammerfell. Það er ekki í takt við gömlu stikluna frá 2018, sem gaf til kynna að sögusvið leiksins yrði High Rock, sem er annað svæði í söguheiminum stóra. Þessi tvö svæði liggja þó hlið við hlið og gæti leikurinn átt sér stað í þeim báðum. Nánar tiltekið eru átta ár, fjórir mánuðir og 23 dagar síðan stiklan hér að neðan var fyrst birt. Siðmenningar hafa risið og fallið á þessum tíma.
Leikjavísir Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Erum bara vinir“ Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir Fær nafn átta árum eftir opinberun Notch setur glæsihúsið á sölu Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Fangelsi undir Vatnajökli Sjá meira