Setja kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. janúar 2019 12:15 Verslun Huawei í Peking. Huawei er næstsöluhæsti framleiðandi snjallsíma á heimsvísu á eftir Samsung en fyrirtækið náði öðru sætinu af Apple í júní fyrra. Vísir/EPA
Vodafone Group hefur sett kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið höfðaði sakamál á hendur fyrirtækinu fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Þá hefur BT Group fjarlægt búnað Huawei úr farsímakerfum sínum í Bretlandi. Mörg af stærstu fjarskiptafyrirtækjum Evrópu ætluðu að nota búnað frá Huawei við uppbyggingu á miðlægum farsímakerfum vegna 5G. Ákæran á hendur fyrirtækinu hefur sett þessi áform í uppnám. Huawei er stærsti birgir í heiminum á sviði farsímakerfa. Þá er fyrirtækið næstsöluhæsti framleiðandi snjallsíma á heimsvísu á eftir Samsung en fyrirtækið náði öðru sætinu af Apple í júní fyrra. Huawei var stofnað árið 1987 af Ren Zhengfei sem var áður verkfræðingar hjá kínverska hernum. Rannsókn yfirvalda í Bandaríkjunum á meintum brotum Huawei á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran hefur staðið, með hléum, yfir í um áratug. Ákæran sem gefin var út á mánudag snýr að stórfelldum hugverkaþjófnaði, brotum á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran og fyrir að hafa vísvitandi veitt fjármálafyrirtækjum rangar upplýsingar. Ætluð brot snúa meðal annars að fyrirtækinu Skycom sem hefur verið umboðsaðili Huawei í Íran.Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei og dóttir stofnanda fyrirtækisins, var handtekin á flugvellinum í Vancouver hinn 1. desember þegar hún var á leið til Mexíkó. Er hún nú í stofufangelsi í Kanada og bíður framsals til Bandaríkjanna vegna ætlaðra brota. Verði hún framseld og dæmd vestanhafs gæti hún átt yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Verður Huawei útilokað frá uppbyggingu á 5G? Bloomberg greindi frá því á dögunum að Vodafone Group, sem Sýn hf. hefur samning við vegna notkunar á vörumerkinu Vodafone á Íslandi, hafi ákveðið að setja í biðstöðu kaup á frekari búnaði af Huawei vegna rekstrar miðlægra kerfa. Þessi ákvörðun Vodafone kemur í kjölfar ákvörðunar BT Group um að fjarlægja búnað frá Huawei úr farsímakerfum fyrirtækisins í Bretlandi. Þá er Deutsche Telekom, stærsta fjarskiptafyrirtæki Evrópu og eigandi vörumerkisins T-Mobile, einnig að endurmeta viðskiptasamband sitt við Huawei. Stjórnvöld aðildarríkja Evrópusambandsins hafa rætt sín á milli hvort það komi til greina að útiloka Huawei frá uppbyggingu á 5G, næstu kynslóð farsímakerfa, í aðildarríkjum sambandsins. Deutsche Telekom hefur hins vegar varað við því og sagt að slík ákvörðun gæti hægt á uppbyggingu kerfanna. Þá eru kanadísk stjórnvöld að íhuga að koma í veg fyrir að búnaður frá Huawei verði notaður við uppbyggingu á 5G fjarskiptakerfum þar í landi. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um slíkt ennþá.
Bandaríkin Kína Tækni Tengdar fréttir Bandaríkin gefa út ákæru á hendur fjarskiptafyrirtækinu Huawei Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei, neitar ásökununum. 28. janúar 2019 22:18 Trudeau bað sendiherra Kanada í Kína um að segja af sér Trudeau hefur ekki sagt hvers vegna hann greip til þessara aðgerða en afsögnin hefur verið rekin til ummæla hans um framsalsbeiðni Bandaríkjanna gagnvart Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska fyrirtækisins Huawei. 26. janúar 2019 23:33 Ætla að standa vörð um kínversk fyrirtæki Ríkisstjórn Kína segir að Bandaríkin eigi að láta af "óskynsamlegum“ aðgerðum þeirra gegn kínverska samskiptafyrirtækinu Huawei. 29. janúar 2019 10:55 Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Bandaríkin gefa út ákæru á hendur fjarskiptafyrirtækinu Huawei Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei, neitar ásökununum. 28. janúar 2019 22:18
Trudeau bað sendiherra Kanada í Kína um að segja af sér Trudeau hefur ekki sagt hvers vegna hann greip til þessara aðgerða en afsögnin hefur verið rekin til ummæla hans um framsalsbeiðni Bandaríkjanna gagnvart Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska fyrirtækisins Huawei. 26. janúar 2019 23:33
Ætla að standa vörð um kínversk fyrirtæki Ríkisstjórn Kína segir að Bandaríkin eigi að láta af "óskynsamlegum“ aðgerðum þeirra gegn kínverska samskiptafyrirtækinu Huawei. 29. janúar 2019 10:55
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent