Skoðun

Vernd persónuupplýsinga – breytt heimsmynd

Helga Þórisdóttir skrifar

Alþjóðlegi persónuverndardagurinn er haldinn í 13. skipti í dag, mánudaginn 28. janúar 2019. Sá dagur hefur verið haldinn hátíðlegur með vísan til fyrsta alþjóðlega samningsins á sviði persónuverndar, Evrópuráðssamningsins, frá 28. janúar 1981. Til þess að mæta kröfum tæknibyltingarinnar hefur ný og uppfærð útgáfa af samningnum verið unnin og er hún nú í fullgildingarferli, en samningurinn var undirritaður fyrir Íslands hönd þann 21. nóvember síðastliðinn.

Augu opnast fyrir afleiðingum af vinnslu persónuupplýsinga

Hugsið ykkur hvaða áhrif olía hafði á heiminn áður fyrr. Það sama er að gerast með persónugreinanleg gögn í dag. Segja má að þessi samanburður í heimildarmyndinni Democracy, sem lýsir vegferð þess frumvarps sem varð að hinni nýju evrópsku persónuverndarlöggjöf, segi meira en mörg orð. Hvern hefði grunað fyrir nokkrum árum að öflugustu og verðmætustu fyrirtæki heims yrðu þau sem vinna með gögn um okkur – oft án þess að við vitum um það? Hvern hefði grunað að hægt væri að kortleggja nær öll okkar nettengdu samskipti, hvort sem er í einkalífinu eða í samskiptum við fyrirtæki, og á stundum einnig við hið opinbera og sveitarfélög? Og hvern hefði grunað að hægt væri með lítilli fyrirhöfn að komast inn á nettengd snjalltæki og fá þannig hljóð og mynd frá einkaheimilum, nú eða hringja í snjallúr barna – taka stjórn á þeim, hlera þau og koma skilaboðum til barna, án þess að foreldrar viti af? Eða að hægt væri að gera atlögu að innviðum samfélaga með þessum nettengdu tækjum og lama þannig starfsemi sjúkrahúsa og orkuvera, svo dæmi séu tekin? Og hvern hefði grunað að fyrirtæki myndu misnota persónuupplýsingar á samfélagsmiðlum með þeim hætti að uppi séu efasemdir um hvort kosningar verði einhvern tíma aftur frjálsar og lýðræðislegar – eins og Cambridge Analytica-hneykslið sýndi fram á? Þá vissu væntanlega fáir að hugsun þeirra sem hönnuðu Internetið snerist einungis um að koma vöru og þjónustu á framfæri. Í engu var hugað að persónuvernd notenda.



Fögnum tækniframförum – en aðgát skal höfð

Allir geta verið sammála um að almennt beri að fagna framþróun í vísindum og tækni en tækniframfarir undanfarinna ára með gríðargögn, gervigreind og sjálfvirka ákvörðunartöku véla fremsta í flokki hafa leitt af sér áleitnar spurningar um hvernig samfélagi við viljum lifa í. Útgangspunkturinn er að við eigum ekki að þurfa að deila öllum okkar persónuupplýsingum með öðrum til að eiga gott líf. Við eigum hins vegar rétt á að vita hver vinnur upplýsingar um okkur, hvenær og í hvaða tilgangi. Þetta eru raunveruleg réttindi sem ber að virða.



Höfundur er forstjóri Persónuverndar




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×