Höfuðborg fyrir tölvupóst – Opið bréf til borgarstjóra Reykjavíkur Kári Stefánsson skrifar 29. janúar 2019 06:00 Ágæti Dagur, ég á góðan vin sem heldur því fram að Göbbels hafi endurholdgast sem hross í Skagafirði með ropvanda. Ropið er auðvitað fyrst og fremst hljóð en það á rætur sínar í lofti sem er þrýst upp í gegnum barkann. Þess ber að geta að þetta loft er sjaldnast eitrað að því marki sem sú lofttegund var sem Göbbels og félagar hans notuðu til þess að fremja glæpi á saklausu fólki. Roparinn gjöreyðileggur hins vegar andann í öllum hesthúsum sem hann kemur í. Þetta er bara eitt dæmi um það hvernig hin ýmsu vandamál hafa tilhneigingu til þess að skjóta upp kollinum í breyttri mynd og á öðrum stað. Göbbels blaðraði út í eitt til þess að hræða og hrekkja. Hrossið ropaði jafnt nótt sem nýtan dag og ég held því fram að það hafi gert það í þeim tilgangi að hrekkja. Ég er nefnilega einn af þeim sem hafa reynt hross af einbeittum brotavilja, þau hafa hent mér yfir girðingar og ofan á hraungrýti í þeim velskilgreinda tilgangi að lækka í mér rostann. Það er sem sagt íslenska hestinum að þakka að ég er allra manna hógværastur. Það vandamál sem skaut upp kollinum hér í henni Reykjavík fyrir skömmu minnir óhjákvæmilega á svipað vandamál sem var á ábyrgð herramanns sem heitir Oliver North og vann fyrir Ronald Reagan, leikara frá Kaliforníu, sem varð forseti Bandaríkjanna í raun og veru þótt hann hafi sjálfur alltaf staðið í þeirri trú að hann væri bara að leika forsetann. Oliver var háttsettur í hernum og vann hin ýmsu myrkraverk fyrir Reagan en það frægasta var þegar hann seldi Írönum vopn þrátt fyrir að Bandaríkjaþing hefði lagt blátt bann við því, og notaði tekjur af sölunni til þess að fjármagna uppreisn gegn sósíalískri ríkisstjórn í Níkaragva. Þegar þetta komst upp var Oliver staðinn að því að mata pappírstætara af öllum gögnum sem lutu að málinu. Þetta varð til þess að í áratug á eftir voru litlir pappírstætarar um heim allan kallaðir Olli en þeir stóru Oliver North. Nú skaut sams konar vandamál upp kollinum á skrifstofu þinni þegar þú lést eyða tölvupóstum sem gengu milli þín og Hrólfs sem var yfirmaður eignasýslu borgarinnar. Þetta er sami Hrólfur og hefur lýst því yfir að hann beri ábyrgð á braggasukkinu við Nauthólsvík. Það var engin tilviljun sem réði því hvaða tölvupóstum var eytt, það var ekki bara einhver sem af slysni ýtti á takka, vegna þess að sömu póstum var eytt af eftirritunardiskum. Það var greinilega einbeittur vilji að baki eyðingu póstanna. Sú skýring sem þú veittir upphaflega á því að póstunum hafi verið eytt var sú að Hrólfur ynni ekki lengur hjá borginni. Þetta mátti sem sagt skilja sem svo að þér þætti það ósköp eðlilegt að þegar menn í opinberum störfum hyrfu frá þeim væri tölvupóstum sem lúta að vinnu þeirra eytt. Mér skilst að þetta stangist jafnvel á við lög og gerir það í það minnsta við heilbrigða skynsemi og er aldeilis fáránlegt af stjórnmálamanni að láta herma upp á sig þvílíkt axarskaft. Það er nefnilega næsta víst að það gæti ekkert það verið í tölvupóstunum eyddu sem væri verra fyrir þig en að vera staðinn að því að eyða þeim. Þegar einhverjir fóru að efast um að póstunum hefði verið eytt staðfesti innri endurskoðun borgarinnar að þeim hefði svo sannarlega verið eytt, en bættu því við að þótt þeim hefði verið eytt þyrfti það alls ekki að hafa verið af annarlegum hvötum. Þar sýndi innri endurskoðun borgarinnar að hún hefur snöggtum meira ímyndunarafl en ég. Þótt líf mitt lægi við gæti ég ekki nefnt aðra þá ástæðu fyrir því að eyða svona póstum en þá sem hlyti að teljast annarleg. Svo er auðvitað hitt að þegar þú gafst skýringu á því hvers vegna póstunum var eytt er ekki ólíklegt að menn hafi misskilið þig. Það er nefnilega oft á tíðum engu auðveldara að finna meiningu í því sem þú segir en í ropanum úr endurholguðu skepnunni norður í Skagafirði. Kannski varst þú að biðjast afsökunar á ódæðinu og tjá vilja þinn til þess að bæta fyrir það. Ef það reynist rétt er enginn vandi að laga þetta. Þessir póstar sitja að öllum líkindum enn á harða drifinu á tölvunni þinni og þarf ekkert meira til en nokkra klukkutíma fagmanna til þess að ná í þá. Það væri ekki bara skynsamlegt heldur sjálfsagt að þú létir sækja tölvupóstana þannig að borgarbúar sjái að það sé ekkert óhreint í því pokahorni. Ef þú gerir það ekki ertu í raun réttri búinn að játa glæpinn og segja okkur að í póstunum hafi verið nokkuð það sem þoli ekki dagsins ljós og sé svo mikilvægt að fela að þú sért reiðubúinn að fórna til þess borgarstjóraembættinu. Það er hins vegar engin ástæða fyrir þig til þess að örvænta vegna þess að Oliver North er búinn að sanna að það er líf eftir gagnaeyðingu. Hann var um daginn kosinn forseti NRA (National Rifle Association) sem eru samtök sem berjast fyrir því að Bandaríkjamenn megi allir eiga þau tæki sem reynast þeim svo vel við að drepa hver annan.Höfundur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Braggamálið Kári Stefánsson Mest lesið Halldór 15.11.2025 Halldór Snýst um deilur Dags og Kristrúnar Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Milljarðakostnaður sérfræðinga Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Tími kominn til að hugsa um landið allt Ingibjörg Isaksen Skoðun „Mamma, eru loftgæðin á grænu?“ Sara björg Sigurðardóttir Skoðun Nýjar lóðir í betri og bjartari borg Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Hvað þýðir „að vera nóg“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað þýðir „að vera nóg“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Nýjar lóðir í betri og bjartari borg Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Tími kominn til að hugsa um landið allt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Milljarðakostnaður sérfræðinga Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Snýst um deilur Dags og Kristrúnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „Mamma, eru loftgæðin á grænu?“ Sara björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Rangfærslur utanríkisráðherra Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Samfélag þar sem börn mæta afgangi Grímur Atlason skrifar Skoðun „Samræði“ við barn er ekki til - það er alltaf ofbeldi Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Staða íslenskrar fornleifafræði Gylfi Helgason skrifar Skoðun Saman náum við lengra. Af hverju þverfagleg endurhæfing skiptir máli Rúnar Helgi Andrason skrifar Skoðun Hefjumst handa við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tími jarðefnaeldsneytis að líða undir lok Nótt Thorberg skrifar Skoðun Ósanngjarnar hækkanir á vörugjöldum án fyrirvara – ábyrgðarleysi gagnvart atvinnulífi Friðrik Ingi Friðriksson skrifar Skoðun Ríkið græðir á eigin framkvæmdum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Íslenska módelið í forvörnum – leiðarljós sem við erum að slökkva á Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenska sem annað tungumál Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Sykursýki snýst ekki bara um tölur Erla Kristófersdóttir,Kristín Linnet Einarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskan er í góðum höndum Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Ójafn leikur á Atlantshafi Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Höfnum óráðsíunni og blásum til sóknar Guðbergur Reynisson skrifar Skoðun Stór baráttumál Flokks fólksins orðin að lögum Inga Sæland skrifar Skoðun Víð Sýn Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Hvenær er nóg orðið nóg? Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar Skoðun Hringekjuspuni bankastjórans: Kjósum frekar breytilega og háa vexti Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Þegar útborgunin hverfur: Svona geta fjölskyldur tapað öllu Már Wolfgang Mixa skrifar Skoðun Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um Sundabraut Kristín Helga Birgisdóttir skrifar Skoðun Leikskólar sem virka: Garðabær í fremstu röð Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Að búa við öryggi – ekki óvissu og skuldir Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Saman náum við lengra. Af hverju þverfagleg endurhæfing skiptir máli Rúnar Helgi Andrason skrifar
Skoðun Hefjumst handa við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Ósanngjarnar hækkanir á vörugjöldum án fyrirvara – ábyrgðarleysi gagnvart atvinnulífi Friðrik Ingi Friðriksson skrifar
Skoðun Íslenska módelið í forvörnum – leiðarljós sem við erum að slökkva á Árni Guðmundsson skrifar
Skoðun Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar