Ískalt en bjart í höfuðborginni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. janúar 2019 07:15 Það eru kaldir en fallegir dagar framundan á höfuðborgarsvæðinu ef marka má veðurspána. vísir/vilhelm
Það verður kalt á landinu næstu daga ef marka má spákortin á vef Veðurstofu Íslands. Þannig er spáð allt að ellefu stiga frosti í Reykjavík á hádegi á laugardegi, sextán stiga frosti á sama tíma á Akureyri og átján stiga frosti á Hvanneyri. Í dag er einnig útlit fyrir að það verði ansi kalt en þó bjart á höfuðborgarsvæðinu með átta stiga frosti en heiðskíru veðri á hádegi. Fyrir norðan er spáð lítils háttar snjókomu og frosti í kringum fjögur stig. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að norðanáttin verði ríkjandi fram að helgi þar sem það verði kalt í veðri en ekkert sérstaklega hvasst. Snjókoma eða él verða á norðanverðu landinu en bjart sunnan heiða. Í dag má reyndar búast við 10 til 18 metrum á sekúndu á Vestfjörðum sem og suðaustan til á landinu en annars hægari vindur. Víða él en léttskýjað á Suður- og Suðvesturlandi.Veðurhorfur á landinu:Norðlæg átt, 10-18 m/s á Vestfjörðum og SA-til, annars hægari. Víða él, en léttskýjað á S- og SV-landi. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum. Norðan 8-13 á morgun og heldur hvassara SA-lands. Él um landið norðanvert, en léttskýjað syðra. Áfram kalt í veðri.Á miðvikudag:Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Él um N-vert landið, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum.Á fimmtudag:Norðan 8-13 og éljagangur, en þurrt og bjart veður S-til á landinu. Kalt áfram.Á föstudag:Norðanátt og él N-lands, en víða léttskýjað á S- og V-landi. Talsvert frost.Á laugardag:Breytileg átt og bjart með köflum, en sums staðar él við ströndina. Kalt í veðri.Á sunnudag:Austlæg eða breytileg átt og snjókoma með köflum, en stöku él N-lands. Minnkandi frost.
Veður Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira