Vorið lætur ekki sjá sig í vikunni Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. apríl 2018 07:00 Snjókoma og él munu vera reglulegir gestir í vikunni. VÍSIR/VILHELM
Þau eru ekki beint vorleg spákortin þessa vikuna. Landsmenn mega gera ráð fyrir snjó eða él víða á landinu í dag og getur frostið farið niður í allt að 14 stig inn til landsins. Þá mun jafnframt hvessa með morgninum og verður vindhraðinn kominn í 15 til 20 m/s við austurströndina eftir hádegi. Því er gul viðvörun í gildi fyrir Austfirði í dag og má þar gera ráð fyrir erfiðum akstursskilyrðum. Það mun þó líklega rofa til á Suður- og Vesturlandi þegar líður á morguninn. Ef marka má kort Veðurstofunnar er þetta veður komið til að vera næstu daga, hið minnsta fram að helgi. Þannig verður til að mynda norðan 8 til 15 m/s og él á norðanverðu landinu á morgun en léttskýjað syðra. Frostið verður á bilinu 0 til 10 stig og kaldast í innsveitum norðaustantil. Þó verður sums staðar frostlaust við suðurströndina. Heldur vetrarlegt í byrjun aprílmánaðar.Veðurhorfur á landinu næstu Á miðvikudag:Norðaustan 8-15 m/s og snjókoma eða él, hvassast á annesjum, en bjart að mestu um landið SV-vert. Víða frostlaust við ströndina að deginum, frost annars 0 til 5 stig. Á fimmtudag:Hæg norðaustlæg átt og dálítil él fyrir norðan, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Hiti kringum frostmark að deginum. Á föstudag og laugardag:Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil él fyrir norðan. Kalt í veðri. Á sunnudag:Útlit fyrir vaxandi sunnanátt með hlýnandi veðri og lítilsháttar vætu vestast á landinu. Á mánudag:Líklega mild sunnanátt og rigning, en þurrt að kalla NA-til
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira