Fram kemur í Lögbirtingablaðinu að Kristján B. Thorlacius lögmaður hafi verið skipaður skiptastjóri í bú DV ehf. Er skorað á alla sem telja sig eiga skuldir eða önnur réttindi hjá búinu að lýsa þeim kröfum sínum fyrir skiptastjóra innan tveggja mánaða.
Engar skráðar fasteignir eru á hlutafélaginu DV ehf. og útgáfurétturinn var seldur Frjálsri fjölmiðlun í september 2017. Fátt bendir því til þess að kröfuhafar hafi í miklar eignir að sækja eins og sakir standa.
Stofnað 2010
Hlutafélagið DV ehf. var stofnað í mars 2010 og var að stærstum hluta í eigu Lilju Skaftadóttur listaverkasala og Reynis Traustasonar. Félagið DV ehf. keypti DV og DV.is af Hreini Loftssyni og Birtíngi hf. Kom fram í tilkynningu að starfsmönnum yrði gefinn kostur á að eignast hlut í blaðinu.Í tilkynningu kom fram að lögð yrði áhersla á „að takmarka áhrif eigendavalds á DV“ og enginn einn hluthafi gæti haft meira en 26 prósent atkvæða, óháð hlutafjáreign sinni.

„Það er orðið alveg ljóst núna að DV mun ganga alveg frá skuld við Tollstjóra á næstu þremur til fjórum vikum,“ sagði Ólafur Magnússon, stjórnarformaður félagsins, í samtali við Vísi.
Árið 2014 fóru að heyrast áhyggjuraddir frá starfsfólki DV vegna yfirvofandi yfirtöku á félaginu. Fór svo að Björn Leifsson, oft kenndur við Laugar, keypti 4,42 prósenta hlut í DV ehf.
„Ef ég get haft einhver áhrif á það að koma Reyni Traustasyni frá þá er það hið besta mál. Hann er stórhættulegur mannorðsmorðingi,“ sagði Björn við það tilefni.

Þorsteinn Guðnason, þáverandi stjórnarformaður, keypti hlut Björns Leifssonar og í framhaldinu var Steinn Kári Ragnarsson ráðinn framkvæmdastjóri DV í október 2014.
Fljótlega fóru í hönd viðræður Vefpressunnar við DV sem lauk með kaupum Björns Inga Hrafnssonar og Vefpressunnar á DV í desember 2014. Varð Björn Ingi nýr stjórnarformaður DV.

Í ársbyrjun 2016 kom í ljós að tap DV árið 2014 hefði numið 124 milljónum króna. Ekki er að sjá að DV ehf. hafi skilað ársreikningi síðan.
Hálfu ári síðar hætti Eggert í starfi ritstjóra. Í mars 2017 krafðist VR þess að DV færi í þrot vegna vangoldinna launa.
Í apríl 2017 komu nýir hluthafar inn í Vefpressuna og Björn Ingi hætti sem stjórnarformaður. Gunnlaugur Árnason átti að taka við stöðu stjórnarformanns en hætti við þegar hann hafði kynnt sér fjárhagsstöðu félagsins. Átti að auka hlutafé um 300 milljónir en meðal þeirra sem áttu að leggja til fé voru fjárfestarnir Árni Harðarson og Róbert Wessman gegnum félag sitt Dalinn.
Síðan hafa staðið miklar deilur Dalsmanna svonefndra og Björns Inga þar sem hver höndin hefur verið uppi á móti annarri.
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður keypti DV, Pressuna og fleiri miðla haustið 2017 og eru miðlarnir reknir undir merkjum Frjálsrar fjölmiðlunar. Frjáls fjölmiðlun fékk um leið útgáfurétt DV ehf sem og Pressunnar sem var úrskurðuð gjaldþrota í desember.
Uppfært
Fréttin uppfærð eftir að Gunnlaugur Árnason skýrði Vísi frá því að hann hefði aldrei tekið við stjórnarformennsku hjá DV ehf.
„Við nánari athugun á fjármálum samstæðunnar kom í ljós að staðan var töluvert verri en á horfðist í fyrstu og þess vegna samþykkti ég ekki að taka að mér stjórnarformennskuna,“ segir Gunnlaugur í samtali við Vísi.