Sex handteknir í aðgerðum lögreglu vegna kannabisræktunar Birgir Olgeirsson skrifar 24. febrúar 2018 10:21 Málin, sem eru óskyld, teljast öll upplýst, en fimm mannanna sem komu við sögu í þeim eru um þrítugt. Sjötti maðurinn sem var handtekinn i þessum aðgerðum er á sextugsaldri. Vísir/ernir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu stöðvað kannabisræktun á nokkrum stöðum í umdæminu, en í þeirri stærstu var lagt hald á nærri 400 kannabisplöntur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en ræktunin var í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi, en þar var einnig að finna um 6 kíló af tilbúnum kannabisefnum til sölu. Ræktunin var mjög fullkomin og búnaðurinn eftir því, en lögreglan tók meðal annars í sína vörslu gróðurhúsalampa, blásara og straumbreyta í tugatali svo eitthvað sé nefnt. Þrír karlar voru handteknir í þágu rannsóknarinnar. Lögreglan stöðvaði líka kannabisræktun í bílskúr í austurhluta Reykjavíkur, en var þar lagt hald á um 250 kannabisplöntur. Hálft kíló af kannabisefnum fannst einnig í bílskúrnum, en þar var sömuleiðis lagt hald á mikið af búnaði tengt ræktuninni. Einn var handtekinn vegna málsins. Þá voru rúmlega 70 kannabisplöntur haldlagðar þegar ræktun var stöðvuð í fjölbýlishúsi í vesturhluta borgarinnar, en þar var sömuleiðis einn handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Loks lagði lögreglan hald á 1.5 kíló af tilbúnum kannabisefnum til sölu, þegar hún framkvæmdi húsleit í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Á sama stað fannst sömuleiðis ætlað kókaín og MDMA, auk fjármuna sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Málin, sem eru óskyld, teljast öll upplýst, en fimm mannanna sem komu við sögu í þeim eru um þrítugt. Sjötti maðurinn sem var handtekinn i þessum aðgerðum er á sextugsaldri.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira