Játaði að hafa skemmt veitingastað í miðborginni Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 06:03 Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í miðborginni í nótt. Vísir/KTD
Karlmaður olli skemmdum á veitingastað í miðborginni á öðrum tímanum í nótt. Í skeyti lögreglunnar segir að maðurinn hafi viðurkennt í samtali við lögreglumenn að hafa valdið skemmdunum og að hann hafi verið látinn laus að spjallinu loknu. Ekki kemur fram í skeytinu hvað vakti fyrir manninum, hvort hann hafi verið í annarlegu ástandi eða hversu miklar skemmdirnar voru. Að sama skapi er ekki tilgreint hvort eigendur veitingastaðarins hyggist fara fram á bætur vegna málsins. Tveir karlmenn voru að sama skapi handteknir í gærkvöldi grunaður um brot á vopnalögum. Þeir gista nú fangageymslur lögreglunnar og munu dvelja þar þangað til þeir verða yfirheyrðir. Karlmaður, sem sagður er hafa verið í annarlegu ástandi, fær einnig að gista í fangaklefa í nótt eftir að hafa verið handtekinn austarlega á höfuðborgarsvæðinu á fjórða tímanum í nótt. Ekki fylgir sögunni hvort hann sé talinn hafa brotið eitthvað af sér eða hvort þörf sé á að yfirheyra hann. Einn ökumaður var jafnframt handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann fékk þó að fara heim til sín að lokinni blóðsýnatöku.
Lögreglumál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira