Börðu þriggja ára barn til bana með hafnaboltakylfu í refsingarskyni Samúel Karl Ólason skrifar 1. febrúar 2018 16:15 Þegar lögreglu bar að garði voru sjúkraflutningamenn að gera endurlífgunartilraunir á drengnum. Þeir sögðu lögregluþjónum að útlit væri fyrir að hann hefði ekki andað um nokkuð skeið. Vísir/Getty
Tvær systur í Atlanta í Bandaríkjunum hafa verið ákærðar fyrir morð og eru sakaðar um að berja þriggja ára dreng til bana með hafnaboltakylfu. Þær voru að refsa drengnum fyrir að hafa stolist til að borða bollaköku. Drengurinn dó í október en konurnar voru ekki ákærðar fyrr en á þriðjudaginn. Það var gert eftir að krufning leiddi í ljós að drengurinn, Kejuan Mason, hefði dáið vegna högga í höfuð og búk hans. Hann var þakinn marblettum en önnur af systrunum Glenndria og LaShirley Morris, rassskellti hann á meðan hin barði hann í skrokkinn með hafnaboltakylfu. Glenndria var forráðamaður drengsins.Þær héldu því upprunalega fram að drengurinn hefði kafnað á bollakökunni. Önnur systirin, Glenndria Morris, breytti svo sögu sinni og sagði að hann kakan hefði staðið í honum en tekist hefði að losa hana. Svo hafi drengurinn verið settur í háttinn og næst þegar kíkt var á hann hafi hann ekki andað. Þegar lögreglu bar að garði voru sjúkraflutningamenn að gera endurlífgunartilraunir á drengnum. Þeir sögðu lögregluþjónum að útlit væri fyrir að hann hefði ekki andað um nokkuð skeið.
Bandaríkin Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Fleiri fréttir Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Sjá meira