Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Lovísa Arnardóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 15. júní 2026 22:13 Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir hefur fylgst vel með þróun mála. Vísir/Anton brink Mál Mariusar Borg Høiby, sonar krónprinsessu Noregs, hefur reynst krúnunni mjög erfitt en töluvert hefur dregið úr stuðningi og trausti í garð norsku konungsfjölskyldunnar undanfarin misseri.
Þetta segir Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir, sérfræðingur í konunglegum málefnum. Høiby var verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir og fleiri afbrot í morgun. Marius hyggst áfrýja dómnum. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum en verjendur Høiby fóru fram á að hann fengi ekki þyngri dóm en átján mánaða fangelsi. „Þannig það er svona farið bil beggja,“ segir Ragnheiður í samtali við Vísi. Høiby var sýknaður af ákæru fyrir tvær nauðganir en sakfelldur fyrir aðrar tvær og fyrir brot í nánu sambandi. Þá var hann dæmdur til greiðslu skaðabóta. Høiby óskaði eftir því að verða látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að geta varið tíma með móður sinni, Mette-Marit krónprinsessu Noregs, sem glímir við alvarlegan lungnavanda og er komin á biðlista eftir ígræðslu. Þeirri beiðni var hafnað á öðru dómsstigi fyrir helgi. Ragnheiður segir að norskir miðlar hafi greint frá því að Marius hafi snöggreiðst eftir að hann fékk niðurstöðuna og kýlt vegg með þeim afleiðingum að hann fór á slysadeild. Fyrrverandi kærasta Mariusar sé fegin að niðurstaða sé komin í málið en þolendur hans hafi bundið vonir við að hann myndi sætta sig við dóminn í morgun og sleppa því að áfrýja. Erfiður tími og útlit fyrir að heilsa Mette-Marit fari versnandi Ragnheiður telur fá fordæmi fyrir því að einstaklingur með tengsl við konungsfjölskyldu sé sakfelldur með þessum hætti en nefnir að Andrew Mountbatten-Windsor, áður þekktur sem Andrés prins, hafi vissulega ekki átt sjö dagana sæla. Hann var handtekinn í febrúar vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. Dómur hefur ekki fallið í málinu. Ragnheiður segir að vel sé fylgst með heilsu Mette-Marit og óneitanlega sé um að ræða erfiða tíma fyrir norsku konungsfjölskylduna. Einnig hefur mikið verið fjallað um umdeild tengsl krónprinsessunar við áðurnefndan Jeffrey Epstein. „Mér finnst miðað við það að hún er komin á þennan biðlista og dóttir þeirra sem var þarna í námi í Ástralíu ætlar að vera skiptinemi í Noregi í haust í staðinn, þá svona greinilega fer sjúkdómurinn versnandi og þetta hefur allt þrengt mjög mikið á greinilega,“ segir Ragnheiður.
Mál Mariusar Borg Høiby Kóngafólk Noregur Tengdar fréttir Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, ætlar að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi sem hann hlaut í morgun fyrir nauðganir og fleiri afbrot. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. 15. júní 2026 15:25 Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Norskur dómstóll dæmdi Marius Borg Høiby, son krónprinsessu Noregs, í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir og fleiri afbrot í morgun. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. 15. júní 2026 06:37 Marius sleppur ekki eftir allt saman Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað. 10. júní 2026 10:19 Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga. 6. júní 2026 13:00 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, ætlar að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi sem hann hlaut í morgun fyrir nauðganir og fleiri afbrot. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. 15. júní 2026 15:25
Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Norskur dómstóll dæmdi Marius Borg Høiby, son krónprinsessu Noregs, í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir og fleiri afbrot í morgun. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum. 15. júní 2026 06:37
Marius sleppur ekki eftir allt saman Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað. 10. júní 2026 10:19
Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga. 6. júní 2026 13:00