Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júní 2026 14:36 Vitni herma að frænkurnar hafi verið að keyra í átt frá lögreglumönnunum þegar þeir skutu á bílinn með þeim afleiðingum að hinn eins árs gamli Kohen Kartier Wiley lét lífið. Getty Lögreglumaður í Mississippi skaut hinn eins árs gamla Kohen Kartier Wiley til bana á sunnudaginn síðasta, þann fjórtánda júní. Wiley hafði verið í verslun Walmart ásamt móður sinni og frænku þegar skotið var á þau þar sem þau óku um bílastæðið á silfurlituðum fólksbíl. Lögregla segir í yfirlýsingu að móðir hans og frænka hafi verið grunaðar um búðarhnupl.
Lögreglumenn frá lögreglunni í borginni Senatobia og sýslumannsembættinu í Tate-sýslu voru að störfum þegar atvikið átti sér stað líkt og fram kemur í frétt miðilsins Mississippi free press. Lögreglumaðurinn sem skaut Wiley hefur ekki verið nafngreindur. Í umfjölluninni er einnig greint frá því að almannavarnadeild Mississippi hafi sent frá sér yfirlýsingu samdægurs þar sem því var haldið fram að skotárásin hafi átt sér stað eftir að annar tveggja einstaklinga ók „í átt að“ lögreglumönnum. Hafi vitað að það væri ungabarn í bílnum Þá segir að á mynd sem fréttastofa Mississippi Free Press hafi undir höndunum sjáist á bílnum mörg skotför á framrúðunni, þar á meðal skotgat farþegamegin. Það sé athyglisvert að í yfirlýsingu almannavarnadeildarinnar virðist viðurkennt að lögreglan hafi séð Kohen Wiley áður en einstaklingarnir fóru inn í bílinn og áður en lögreglumaðurinn hleypti af skoti. „Lögreglumenn brugðust við útkalli vegna búðarþjófnaðar í Walmart við U.S. 51. Þegar á staðinn var komið mættu lögreglumenn tveimur einstaklingum og ungbarni sem flúðu úr versluninni inn í bifreið. Lögreglumenn reyndu að stöðva bifreiðina en ökumaðurinn ók í átt að lögreglumönnunum og var næstum búinn að aka á einn þeirra,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingu frá lögreglu segir að lögreglumenn hafi reynt að stöðva bifreiðina en ökumaðurinn hafi ekið í átt að lögreglumönnunum.Getty „Lögreglumaður hleypti þá af skoti og bifreiðin flúði af vettvangi. Einstaklingarnir komu á sjúkrahús á staðnum þar sem eitt ungbarn í bifreiðinni var úrskurðað látið og annar einstaklingur var með lífshættulega áverka. Engir lögreglumenn hlutu alvarlega líkamlega áverka.“ Frænka Wiley í lífshættu Fjölskyldumeðlimir Kohen Wiley hafa neitað því að nokkur búðarþjófnaður hafi átt sér stað en bandaríska sjónvarpsstöðin WREG-TV í Memphis greindi frá því að fyrir skotárásina hafi vitni séð tvær konur koma út úr versluninni: önnur með einn bleiupakka og hin með ungabarnið. Haft er eftir fjölskyldunni að móðir Kohens hafi setið í farþegasætinu og haldið á barninu þegar lögreglumaðurinn skaut að bílnum og að frænka þeirra, sem hafi ekið bílnum, væri í lífshættu. Annað vitni á að hafa sagt fréttastofunni að hún hafi séð bílinn aka í burtu með lögreglumenn á eftir honum rétt áður en hún heyrði skothvelli. Lögreglan í Senatobia sendi frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum skömmu eftir skotárásina, þar sem staðfest var að rannsóknin hefði verið afhent rannsóknarlögreglu Mississippi og lofað gagnsæi þegar fram liðu stundir. „Lögreglan í Senatobia rannsakar nú skotárás þar sem lögreglumaður átti hlut að máli, sem átti sér stað í dag um klukkan 14:05 í Walmart,“ sagði í yfirlýsingunni. „Fyrstu fregnir herma að lögreglumenn hafi brugðist við tilkynningu um búðarþjófnað, sem leiddi til þess að lögreglumenn hleyptu af skotvopnum sínum.“
Bandaríkin Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira