Óttast að níutíu hafi drukknað í Miðjarðarhafi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 3. febrúar 2018 10:46 Á síðustu fjórum árum hafa yfir 600 þúsund flóttamenn komist frá Líbíu til Ítalíu með því að fara sjóleiðina. Nokkur þúsund manns hafa drukknað í Miðjarðarhafinu. vísir/afp
Talið er að minnst níutíu hafi drukknað undan strönd Líbíu í gær eftir að bát fullum af flóttamönnum hvolfdi. Alls drukknuðu 246 manns við tilraunir til að komast yfir Miðjarðarhafið í janúar og hafa dauðsföll vegna þess aðeins einu sinni verið fleiri á einum mánuði. Minnst tíu líkum skolaði á land nálægt bænum Zuwara í Líbíu í gær. Talið er að átta þeirra hafi verið frá Pakistan og tveir frá Líbíu. Þá er óttast að minnst níutíu hafi drukknað þegar bátnum hvolfdi að því er fram kemur í tilkynningu frá flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Haft er eftir Oliviu Headson, talskonu stofnunarinnar, að talið sé að minnst þrír hafi komist lífs af. Í nokkur ár hefur Líbía verið sá staður í Afríku sem flestir nota til að freista þess að komast til Evrópu, þá aðallega til Ítalíu. Undanfarið hefur það færst í vöxt að Pakistanar leiti betra lífs utan heimalandsins og reyni að flýja þessa leið. Hins vegar hefur þeim fækkað í heildina sem reyna að fara sjóðleiðuna. Í janúar í fyrra voru það um 4500 manns en í um 4300 manns í ár. Þeim sem drukkna í Miðjarðarhafi virðist þó vera að fjölga en í janúar mánuði drukknuðu 246 manns. Aðeins í júní í fyrra drukknuðu fleiri í hafinu á einum mánuði.
Flóttamenn Líbía Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira