Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2.
Tilkynning Orkustofnunar í byrjun vikunnar, um að erlendu sérleyfishafarnir á Drekasvæðinu hefðu ákveðið að skila inn leyfinu, var óvænt. Stjórnarformaður Eykons, Heiðar Guðjónsson, sagði ákvörðun þeirra koma óþægilega á óvart og taldi hana lykta af pólitík. Hann vísaði til þess að Norðmennirnir hefðu í nóvember lagt til að farið yrði í grunnar boranir en jafnframt hafði norska Stórþingið samþykkt um miðjan desember að fjórfalda framlög til olíuleitarinnar á þessu ári.
Nú hefur Petoro birt fréttatilkynningu þar sem skýrðar eru ástæður þess að ríkisolíufélagið norska ákvað að skila inn síðasta sérleyfi sínu á landgrunni Íslands. Þar segist félagið hafa lagt sjálfstætt mat á líkur á olíufundi.

Petoro segir jarðfræði Drekasvæðisins mjög flókna og einkennast af mikilli sögulegri eldvirkni, sem geri mat á verkefninu mjög erfitt. Eldvirknin hafi stuðlað að mjög miklum hita sem skapi miklar áskoranir gagnvart hugsanlegum kolvetnum og varðveislu þeirra.
Ef leyfið hefði verið tekið á næsta stig hefði þurft að kaupa þrívíðar bergmálsmælingar á minnst 200 ferkílómetra svæði. Haustið 2017 hefðu Petoro og aðrir leyfishafar rætt um að taka meiri tíma í að greina fyrirliggjandi gögn, auk þess sem grunn sýnataka úr berggrunni gæti verið gagnleg áður en endanleg ákvörðun yrði tekin.
„Rekstraraðilinn CNOOC mat það ekki aðlaðandi að halda áfram á næsta stig með svo litlar líkur á að finna kolvetni sem vinna mætti á arðbæran hátt.
Eftir heildstætt mat lagði fyrirtækið til að leyfinu yrði skilað. Petoro tók undir mat og ákvörðun CNOOC og mun gefa eftir leyfið til olíuleitar,” segir í tilkynningu Petoro.
Búist er við að Orkustofnum ákveði eftir miðjan febrúar hvort íslenska félagið Eykon fái að halda sínum hluta leyfisins áfram eða hvort það verði afturkallað.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: