Forseti Suður-Kóreu segir Trump eiga heiður skilinn Atli Ísleifsson skrifar 10. janúar 2018 11:29 Moon Jae-In, forseti Suður-Kóreu, segist reiðubúinn að funda með Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Vísir/AFP
Moon Jae-In, forseti Suður-Kóreu, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti eigi stóran þátt í að fulltrúar Norður- og Suður-Kóreustjórnar hafi nú rætt saman í fyrsta sinn í um tvö ár. „Hann á heiður skilinn,“ segir Moon um bandarískan starfsbróður sinn. Fulltrúar stjórnar Norður- og Suður-Kóreu funduðu fyrir skemmstu í landamærabænum Panmunjom, nærri vopnahléslínunni milli ríkjanna. Moon sagði á fréttamannafundi að fundurinn hafi lofað góðu upp á framhaldið og sagðist forsetinn einnig vera reiðubúinn, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, að hitta leiðtoga Norður-Kóreumanna, Kim Jong-un, augliti til auglitis. Ástandið á Kóreuskaga hefur verið eldfimt að undanförnu vegna kjarnorku- og eldflaugatilrauna Norður-Kóreumanna þó að ákveðinnar þíðu haft orðið vart á síðustu dögum. Moon segir að viðskiptaþvinganir og þrýstingur Bandaríkjastjórnar hafi þátt í því að viðræður ríkjanna á skaganum hafi verið teknar upp að nýju. Moon segir það kröfu Suður-Kóreustjórnar að Norður-Kóreustjórn afvopnist og stöðvi framleiðslu kjarnorkuvopna, en að Suður-Kóreustjórn vinni ekki sérstaklega að sameiningu ríkjanna á þessari stundu.
Donald Trump Norður-Kórea Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira