Guðjón Valur: Verðum að vera allt að því grófir Henry Birgir Gunnarsson í Split skrifar 16. janúar 2018 13:30 Við þurfum að hafa Guðjón Val í stuði í dag. vísir/ernir
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var rólegur og yfirvegaður á hóteli íslenska landsliðsins í gær. Ekkert stress. Allt aðstæður sem hann þekkir vel í aðdraganda úrslitaleiks fyrir Ísland á stórmóti. Guðjón segir að serbneska liðið sé hættulegt því það sé óhefðbundið og beitir mörgum varnarafbrigðum til að mynda. „Maður þyrfti helst að hafa viku í undirbúning ef maður ætlaði að fara í gegnum allt saman hjá þeim,“ segir Guðjón Valur sem gefur lítið fyrir umræðu um að Ísland eigi að vinna Serba. „Það er ágætt ef fólk ætlast til þess af okkur því við ætlumst til þess sjálfir. Þetta er samt gríðarlega vel mannað lið. Er maður sér hvaða menn þetta eru og í hvaða liðum þeir eru þá eru þetta engir aukvisar. Við ætlum okkur sigur og verðum að mæta harðir til leiks.“ Það þarf ýmislegt að ganga upp svo þetta verði gott kvöld fyrir íslenskan handbolta. „Við verðum að spila gríðarlega góða vörn. Við verðum að vera mjög fastir fyrir og allt að því grófir til þess að hleypa þeim ekki upp með neitt. Ef að þeir fá tíma með boltann þá eru þeir ótrúlega klókir. Því minni tími sem þeir fá með boltann því pirraðri verða þeir. Þá fáum við þá vonandi eitthvað af hraðaupphlaupum sem ég held að komi til með að ráða úrslitum í þessum leik,“ segir fyrirliðinn en ef vel fer þá verður gaman í framhaldinu. „Þá erum við í séns í mótinu. Okkar markmið er að komast áfram og síðan sem lengst. Við ætlum okkur sigur í þessum leik.“
EM 2018 í handbolta Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira