Fóru leynt með sprenginguna á Akranesi til að forðast athygli Sigurður Mikael Jónsson skrifar 4. janúar 2018 06:00 Skökku turnarnir á Skaganum standa enn eftir að vanmetið var hversu rækilega járnbundin mannvirkin væru. vísir/anton brink „
Helsta skýringin sem liggur fyrir er að það hafi verið meiri járnabinding í mannvirkinu en þeir gerðu ráð fyrir,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, um misheppnað niðurrif verktakans Work North ehf. á fjórum sílóum á lóð Sementsverksmiðjunnar á laugardag. Reynt var að fella sílóin með sprengiefni en ekki vildi betur til en svo að þau rétt bifuðust og tóra enn skökk á sínum stað svo hætta þykir stafa af. Engar tilkynningar voru sendar til íbúa á Akranesi né heldur var bæjaryfirvöldum kunnugt um að verktakinn hygðist fara í verkið á laugardaginn. Sævar Freyr segir að síðustu samskipti við verktakann hafi verið á þá leið að búið væri að fresta sprengingunni yfir áramót.Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi.vísir/daníelSævar segir verktakann hafa látið lögreglu vita og íbúa í allra næsta nágrenni en að bæjaryfirvöld hafi viljað upplýsa bæjarbúa um hvenær sprengingin yrði. Enginn eftirlitsaðili frá bænum var á svæðinu þegar sprengt var. „Ekki þegar verkið sjálft fór fram. Það var haft samband við eftirlitsaðilann í aðdragandanum en þessu atriði varðandi hvenær framkvæmdin yrði var ekki sinnt að okkar kröfum.“ Sævar Freyr segir að misskilningur sé ekki orð sem hann myndi nota yfir það að verktakinn hafi farið í verkið án þess að upplýsa stjórnendur hjá bænum. „Þeir sinntu ekki því að gera okkur kleift að sinna upplýsingagjöfinni til allra. Ein rökin sem nefnd voru fyrir því var að þeir vildu ekki fá of mikla athygli á svona sprengingu. Fólk á til að safnast að þegar sprengingar eru og það hafi verið öryggismál. En það eru ekki rök sem við tökum gild. Við getum alltaf tryggt að fólk komist ekki að þegar sprenging á sér stað.“ Eftir klúðrið var nærliggjandi götu, Faxabraut, lokað og verður hún að sögn Sævars lokuð af öryggisástæðum þar til turnarnir eru endanlega fallnir. Verið er að undirbúa næstu atlögu að sílóunum og að sögn Sævars verður gefin út tilkynning á næstu dögum. Niðurrif á öðrum byggingum á Sementsreitnum heldur þó áfram og gengur vel.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira