Krefjast nemarnir þess að Háskóli Íslands og stjórnmálafræðideildin sem Hannes kennir við, taki ábyrgð og áminni hann opinberlega. Tugir nemenda hafa skrifað undir yfirlýsingu um málið.
Tíðar kvartanir ekki skilað árangri
„Í stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands er kennslubók og kennsluhættir sem innihalda kvenfyrirlitningu, fitufordóma, kynþáttafordóma og niðurlægjandi orð um fatlaða. Við krefjumst þess að Háskóli Íslands og stjórnmálafræðideild taki ábyrgð. Tíðar kvartanir hafa ekki skilað árangri og tökum við því þetta skref. Lítilsvirðing á hópa og einstaklinga í kennslutímum og kennslugögnum í áfanganum Stjórnmálaheimspeki undir stjórn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar er ólíðandi,“ segir meðal annars í yfirlýsingu nemanna.
Brot úr bókinni Saga stjórnmálakenninga, sem Hannes skrifaði og nýtir við kennslu í áfanganum Stjórnmálaheimspeki, hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum síðustu vikur.
Í umfjöllun um klámsölu og vændiskaup segir Hannes í bókinni:
„Vændiskaupendur eru margskonar. Ætti sú staðreynd, að þeir eru margir ófrýnilegir karlskrökkar, ekki að vekja samúð frekar en reiði? Hvert eiga þeir að leita, sem geta ekki útvegað sér rekkjunaut á neinn annan hátt en að greiða fyrir hann, til dæmis fólk sem á við fötlun, offitu eða aðra líkamsgalla að etja?“ Skrifar hann einnig:
„Ef maður fær að skoða klámblað eða klámmyndir eða kaupa blíðu af konu í vændishúsi, þá ættu líkur að minnka á því, að hann beiti örþrifaráðum eins og nauðgun eða lostugu athæfi á almannafæri til þess að svala kynhvöt sinni.“Nemendurnir krefjast þess að bókin verði tafarlaust tekin úr umferð sem kennslugagn.
![](https://www.visir.is/i/CB25984899F6C3281941F7274A8FDF4F3CDDAB0DCBDB14EE7284D1FB9B08B3AA_713x0.jpg)
Fyrrum og núverandi nemendum þykir núverandi ástand ekki geta viðgengist í háskóla sem stefnir að því að verða á meðal þeirra 100 bestu í heiminum. Benda nemendur einnig á þá staðreynd að Hannes hafi verið dæmdur árið 2008 fyrir brot á höfundarréttarlögum.
Ef nemandi í háskólanum gerðist sekur um slíkt væri honum vísað úr skólanum.
„Í ljósi þess krefjumst við að gætt sé jafnræðis og námsmönnum við Háskóla Íslands sé ekki vísað úr skóla ef þeir verða uppvísir af broti á höfundarréttarlögum svo lengi sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson vinnur þar.“
Allir nemendur í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands þurfa að ljúka námskeiðinu sem Hannes kennir. Þetta þykir þeim ekki í lagi, bæði vegna höfundarréttarbrots hans og námsefnisins.
„Við krefjumst þess að Hannes Hólmsteinn Gissurarson kenni ekki skyldunámskeið við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.“
Andlegt ofbeldi
Svanur Kristjánsson, fyrrum prófessor við deildina sem nú er kominn á eftirlaun, hefur áður gagnrýnt Háskóla Íslands opinberlega vegna viðbragða skólans í málum Hannesar, bæði vegna brots hans á höfundarlögum og svo seinna samskipta við samstarfsfólk.
„Enginn getur útskrifast sem stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands án vottunar Hannesar Hólmsteins prófessors á hæfni þeirra,“ skrifaði Svanur fyrir nokkrum árum um skyldunámskeið Hannesar. Staðan er óbreytt í dag.
Í samtali við Vísi segir Svanur að mál Hannesar hvíli enn yfir Háskóla Íslands.
Hannes Hólmsteinn var vorið 2008 dæmdur í Hæstarétti fyrir brot á höfundarétti ekkju Halldórs Kiljan Laxness með útgáfu bókar sinnar Halldór, ævisögu hans um Halldór Kiljan Laxness. Kristín Ingólfsdóttir, þáverandi rektor Háskóla Íslands, taldi sig ekki hafa lagalegt svigrúm til að veita Hannesi áminningu.
„Það væri hvergi til umræðu annars staðar en við Háskóla Íslands, að maður sem hefur verið dæmdur fyrir stórfelld brot á höfundarréttarlögum eða ritstuld, sé að kenna við háskólann. Það er fráleitt.“
![](https://www.visir.is/i/8FEECCEF047111A89EBBD24682FF2F49EB873C0BB48B12C9516E6F18668EB55E_713x0.jpg)
„Að krefjast þess að nemendur séu að taka skyldunámskeið hjá kennara sem hefur verið dæmdur fyrir brot á höfundarréttarlögum, er litið á sem andlegt ofbeldi.“
Kæmi skemmtilega á óvart
Svanur segir að málið sé gjörsamlega út í hött. Kennslubókin sem hann skrifi sé líka bara sér kafli út af fyrir sig.
„Þú þarft að hafa ritrýnt efni sem einhver annar en þú sjálfur hefur vottað að standist fræðilegar kröfur.“
Hann segir að í ljósi reynslunnar hafi hann enga trú á því að yfirlýsingar nemenda hafi áhrif á stöðu mála.
„Nemendur hafa kvartað áður og háskólayfirvöld eru hreinlega bara hrædd við Hannes Hólmstein Gissurarson.“
Svanur vonar að uppreisn nemenda hafi áhrif, það kæmi honum skemmtilega á óvart.
„Það má samt svo sem alveg vera að það verði gert og ég vona að það verði eitthvað gert og þessu andlega ofbeldi verði létt af nemendum. Að háskólinn reyni að standa undir nafni.“
Hann segir að það sé ekki í lagi að kennari sem gerist sekur um ritstuld fái að halda áfram kennslu eins og ekkert hafi gerst en nemendur séu reknir fyrir það sama. Það sé mjög alvarlegt að maður sem Hæstiréttur hafi dæmt fyrir brot á höfundarrétti kenni skyldunámskeið.
„Þetta er brot á öllu því sem háskólar standa fyrir.“