Dularfullur seladauði í dýpsta stöðuvatni heims Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2017 13:04 Selirnir við Bajkalvatn, nerpa, eru einstakir á heimsvísu. Vísir/Getty
Síðustu daga hefur alls 141 dauðan sel skolað á land við strendur Bajkalvatns í Rússlandi, dýpsta stöðuvatni heims. Talsmaður rússneskra yfirvalda telur líklegast að selirnir hafi drepist vegna vannæringar sem rekja megi til stækkandi stofns sela við vatnið. Eiga hræ fyrstu selanna að hafa skolað á land um síðustu helgi. Ekki hefur verið slegið föstu hvað hefur dregið selina til dauða, þó að búið sé að útiloka að um sjúkdóm sé að ræða. Fyrst og fremst hafi kvenselir, urtur, drepist og hefur verið eftir því tekið að enginn hatur hafi verið í maga þeirra. Selum hefur fjölgað mikið við Bajkalvatn á síðustu árum eftir að veiðibanni var komið á 2009 til að vernda stofninn. Er áætlað að selirnir telji nú um 130 þúsund. Selirnir við Bajkalvatn, nerpa, eru einstakir á heimsvísu, en þetta ku vera eina selategundin sem lifir einungis í ferskvatni. Bajkalvatn er að finna nálægt landamærunum að Mongólíu, er 636 kílómetra langt og 1.642 metra djúpt. Um 20 prósent af feskvatni heims er að finna í vatninu og er þar að finna um 1.500 dýra- og plöntutegundir sem finnast ekki annars staðar í heiminum.
Mongólía Vísindi Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira