Él og slydda í kortunum þessa vikuna Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 30. október 2017 08:21 Búast má við kólnandi veðri í vikunni. Vísir/Ernir
Búast má við kólnandi veðri í vikunni. Í dag er róleg suðlæg eða breytileg átt í vændum með dálítilli rigningu, en það ætti að hanga þurrt norðaustantil samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Það er milt loft yfir landinu og hitinn þokkalegur miðað við árstíma, eða 5 til 10 stig. Haustveður á Íslandi gerist varla mikið meinlausara en í dag. Á morgun bætir í vind og vætu á vestanverðu landinu, suðvestan 8-13 m/s þar síðdegis og samfelld rigning. Áfram hægari vindur og þurrara austanlands. Annað kvöld snýst í strekkings norðanátt á Vestfjörðum og víðar um land aðfaranótt miðvikudags. Það kólnar með norðanáttinni og aðfaranótt miðvikudags og framan af degi má búast við slyddu eða snjókomu á öllu norðanverðu landinu, þó væntanlega hangi hann lengst af í rigningu alveg niður við sjávarmál. Um skammvinna norðanátt er að ræða, því síðdegis á miðvikudag lægir og léttir til og verður þá fróðlegt að sjá að hversu miklu leyti jörð verður orðin grá eða hvít á Norður- og Austurlandi eftir þetta sýnishorn af norðanátt.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Suðvestan 5-13 m/s og rigning með köflum, en léttir til austanlands. Hiti 5 til 10 stig. Norðlægari um kvöldið með slyddu um landið norðvestanvert og kólnandi veðri. Á miðvikudag: Norðan 8-13 m/s framan af degi, en 13-18 austast á landinu. Él um landið norðanvert, en bjartviðri sunnantil. Lægir og styttir upp síðdegis. Hiti 1 til 5 stig við S- og V-ströndina, annars hiti um frostmark. Hægt vaxandi sunnanátt um kvöldið. Á fimmtudag: Suðvestan 8-15 og rigning eða jafnvel slydda, en úrkomulítið austanlands. Hiti 2 til 8 stig. Á föstudag: Norðan 5-10 og él við norðurströndina. Hæg breytileg átt í öðrum landshlugum og stöku skúrir eða slydduél. Hiti nálægt frostmarki. Á laugardag: Norðanátt og dálítil él norðantil, en léttskýjað syðra. Víða vægt frost. Á sunnudag: Líkur á að gangi í hvassa suðaustanátt með rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira