Fyrrverandi seðlabankastjórar Írlands og Kýpur veita ráðgjöf um peningastefnu Hörður Ægisson skrifar 5. júlí 2017 15:22 Ásgeir Jónsson, dósent við hagfræðideild Háskóla Íslands, er formaður verkefnisstjórnar sem hefur það hlutverk að endurmeta forsendur peninga- og gengisstefnu Íslands.
Patrick Honohan, fyrrverandi seðlabankastjóri Írlands, og Anthanasios Orphanides, sem var seðlabankastjóri Kýpur á árunum 2007 til 2012, munu veita sérstakri verkefnisstjórn á vegum íslenskra stjórnvalda ráðgjöf um peninga- og gengisstefnu til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu en í mars síðastliðnum skipaði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra þriggja manna verkefnisstjórn en í henni sitja Ásgeir Jónsson, dósent við hagfræðideild Háskóla Íslands, Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og Illugi Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Verkefnisstjórnin hefur það markmið að finna þann ramma peningastefnu sem til lengri tíma litið er heppilegastur til að styðja við efnahagslegan og fjármálalegan stöðugleika hérlendis. Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins að á undanförnum mánuðum hafi verkefnisstjórnin átt fjölmarga fundi með fulltrúum úr fræðasamfélaginu, stofnunum sem koma að framfylgd peningastefnunnar og hagsmunaaðilum, auk þess að funda með þingflokkum. Þá hefur nefndin átt fundi með fulltrúum frá seðlabönkum og fjármálaráðuneytum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og öðrum erlendum sérfræðingum. Auk fyrrverandi seðlabankastjóra Írlands og Kýpur þá hafa nokkrir aðrir erlendir sérfræðingar þegið boð verkefnastjórnarinnar um að veita stjórnvöldum ráðgjöf við þessa vinnu. Þannig mun Sebastian Edwards, prófessor við UCLA-háskóla, sérstaklega meta aðra valmöguleika peningastefnu fyrir Ísland en núverandi verðbólgumarkmið og Lars Jonung, prófessor við Háskólann í Lundi, og Fredrik N. G. Andersson, dósent við sama skóla, fjalla um íslenska peningastefnu í norrænum samanburði.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira