Til hamingju Grunnskóli Seltjarnarness Sigrún Edda Jónsdóttir skrifar 15. júní 2017 07:00 Á meðan árangur íslenskra nemenda hefur í heild legið niður á við í PISA-könnunum undanfarinn áratug hefur árangur nemenda við Grunnskóla Seltjarnarness verið á uppleið og aldrei mælst betri en í nýjustu könnuninni, sem lögð var fyrir vorið 2015. Seltjarnarnesbæ bárust niðurstöður fyrir Grunnskóla Seltjarnarness í janúarmánuði sl. og hafði þeirra verið beðið með nokkurri óþreyju, þar sem stærstu sveitarfélögum landsins voru kynntar niðurstöður snemma í desember. Þá var líka slegið upp veislu fyrir starfsfólk Grunnskóla Seltjarnarness til að fagna niðurstöðum úr PISA-könnun enda rík ástæða til. Niðurstaðan kemur ekki á óvart þar sem Grunnskóli Seltjarnarness hefur komið vel út á samræmdum prófum nú í mörg ár í röð og mælingar Skólapúlsins á líðan nemenda og námsáhuga hafa komið vel út þar sem jákvætt viðhorf þeirra til náms og trú á eigin getu hefur verið staðfest. Markvisst hefur verið unnið með undirstöðugreinar sem prófað er í og gripið inn í strax og niðurstöður liggja fyrir ef ástæða þykir til. Framfarir frá síðustu mælingu má rekja til þess góða starfs sem unnið hefur verið innan skólans. Þessi niðurstaða er mikil viðurkenning fyrir það góða starfsfólk sem er í skólanum okkar og því ber að hrósa fyrir gott starf sem skilar sér i þessum flotta árangri. En svo vikið sé að niðurstöðum úr PISA þá má sjá hér samanburð við meðaltalstölur úr prófum fyrir nemendur af Seltjarnarnesi, Íslandi í heild og í OECD-löndunum frá árunum 2012 og 2015. Ólíkt því sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum hafa nemendur í Grunnskóla Seltjarnarness bætt sig á milli áranna 2012 og 2015 eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.Nemendur skólans standa nú að meðaltali nokkuð framar jafnöldrum sínum á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að meðaltalstölum sveitarfélaganna sem er breyting frá niðurstöðum PISA-rannsókna fyrri ára. Reiknað er út svokallað öryggisbil sem er gert til að taka tillit til fjölda nemenda í hverju sveitarfélagi/svæði fyrir sig en eins og gefur að skilja er misjafn fjöldi á bak við niðurstöður milli svæða. Öryggisbil tilgreinir það bil sem hægt er að segja með 90% vissu að meðaltal skólans tilheyri og litið er til þess þegar meta skal hvort breytingar á milli tímabila séu marktækar og í samanburði við niðurstöður annarra. Þegar tekið er tillit til öryggisbils Grunnskóla Seltjarnarness eru neðri mörk þess vel yfir meðaltali á öllum sviðum fyrir Ísland sem og OECD, sem þýðir að árangurinn er vel marktækur. Munur umfram 10 stig telst marktækur og munur upp á 40 stig telst nema einu skólaári. Þannig munar 54 stigum á meðaltali Grunnskóla Seltjarnarness og meðaltali allra skóla á Íslandi í læsi á stærðfræði árið 2015 sem svarar meira en einu skólaári. Munur á milli meðaltals Grunnskóla Seltjarnarness og OECD er 52 stig á sama hátt. Þess ber að geta að munur á tveimur meðaltölum er vísbending ekki þróun. Svona uppörvandi niðurstöður eru mjög svo jákvætt innlegg í skólaumræðuna og góð hvatning fyrir skólasamfélagið og sveitarfélagið í heild. Seltjarnarnes sker sig úr hópnum með þeirri framför sem hefur orðið í árangri í PISA 2015 þar sem flest sveitarfélögin skiluðu lakari árangri á milli tímabila. Það er því rík ástæða til óska starfsfólki Grunnskóla Seltjarnarness og nemendum til hamingju með þennan flotta árangur með von um áframhaldandi velgengni. Höfundur er formaður skólanefndar Seltjarnarness. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar