Vinnuveitendur sagðir okra á starfsmönnum Sveinn Arnarsson skrifar 13. maí 2017 07:00 Þrír af hverjum fjórum nýjum skattgreiðendum hér á landi í fyrra voru erlendir ríkisborgarar. vísir/vilhelm
Færst hefur í aukana að vinnuveitendur okri á leigu erlendra starfsmanna sinna sem hingað koma til landsins til að vinna. Forsvarsmenn verkalýðsfélaga sjá skýr merki þess. Nærri fjórir af hverjum fimm nýjum launþegum hér á landi eru erlendir ríkisborgarar. Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar í Þingeyjarsýslum, segist finna mikið fyrir þessari breytingu. „Það hefur færst í aukana upp á síðkastið að vinnuveitendur útvegi húsnæði fyrir starfsólk sitt. Við höfum svo séð mikið okur þar og launafólk þannig hlunnfarið. Þetta er eitthvað sem við þurfum að bregðast við á meðan svo margir koma hingað til lands í leit að atvinnu,“ segir Aðalsteinn Árni. „Við sjáum það sums staðar að brotaviljinn er mjög mikill hjá sumum vinnuveitendum,“ bætir Aðalsteinn Árni við. Hallur Oddsson, lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, tekur undir með Aðalsteini Árna á Húsavík og segir þetta hafa aukist upp á síðkastið. „Við höfum einnig orðið vör við þessa þróun hjá okkur,“ segir Hallur.Við höfum orðið vör við að fólk komist ekki úr húsnæði sínu þar sem það gæti átt á hættu að missa vinnuna. Því erum við að sjá þetta eins og nokkurs konar vistarband. Aðalsteinn Árni segir mikilvægt að verkalýðsfélög fái fleiri verkfæri til að geta skorist í leikinn þegar svona er í pottinn búið. „Okkar heimildir eru aðeins að tryggja að laun séu í samræmi við kjarasamninga. Það er kannski allt í lagi á þeirri hlið peningsins á meðan dregið er af starfsmanni of mikið í leigu að okkar mati. Við þyrftum að fá rýmri heimildir til að laga þessa stöðu.“ Um 2.500 manns fluttu hingað til lands á fyrstu þremur mánuðum ársins. Húsnæðismarkaðurinn hefur verið mjög erfiður síðustu misseri og sjást merki þess. „Við erum að sjá erlent starfsfólk með búsetu þar sem fólk á ekki að búa, til að mynda í ósamþykktum íbúðum og iðnaðarhúsnæði. Færst hefur í aukana að vinnuveitendur skaffi starfsfólki húsnæði og dragi af því leigu,“ segir Hallur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira