Húsgögn sýslumanns reyndust grundvöllur greiðslu skaðabóta Jóhann Óli Eiðsson skrifar 16. maí 2017 07:00 Sýslumaðurinn bar sig ekki rétt að við útboðið. vísir/andri marinó
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu þarf að greiða Pennanum skaðabætur vegna þátttöku síðarnefnda aðilans í útboði um kaup á skrifstofuhúsgögnum í húsnæði embættisins í Hlíðasmára. Þetta er niðurstaða kærunefndar útboðsmála. Í útboðsgögnunum kom fram að leitað væri að „vönduðum, fallegum og stílhreinum húsgögnum sem gætu gefið nýjum vinnustað sterka sjálfsmynd með hlýlegu og heimilislegu yfirbragði“. Hagkvæmasta tilboðinu yrði tekið en þar vó verð 70 prósent en gæði vöru 30 stig. Á endanum var tilboði Á. Guðmundssonar tekið en það hlaut rúm 81 stig. Tilboð Pennans hlaut hins vegar tæplega 81 stig. Forráðamenn Pennans töldu að upplýsingarnar í útboðinu hefðu verið of matskenndar og hefðu gefið sýslumannsembættinu of mikið svigrúm til að túlka tilboðin eftir eigin höfði. Eitt tilboð Pennans var metið ógilt þar sem það innihélt hirslur úr harðplasti en ekki spónlagðri eik. Hin tilboðin innihéldu gestastóla og sófasæti en um sömu stóla var að ræða í öllum tilfellum. Embættið taldi að þeir hefðu ekki fallið vel að því útliti sem leitað var eftir. Slík húsgögn sé að finna í biðrýmum og því skipti þau miklu máli fyrir viðskiptavininn. Það var mat kærunefndarinnar að þau atriði sem skoðunarhópur sýslumanns skyldi líta til varðandi mat á gæðum hefðu verið almenn og afar óljós í veigamiklum atriðum. Sökum þess, meðal annars, var fallist á að sýslumannsembættið væri bótaskylt gagnvart Pennanum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira