Verndum Seljalandsfoss Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir skrifar 17. maí 2017 07:00 Deiliskipulagsmál við Seljalandsfoss hafa undanfarið vakið athygli í fréttum og mikil viðbrögð hjá almenningi sem sýna að mörgum er annt um staðinn. Svæðið frá fossinum Gljúfrabúa að Seljalandsfossi hefur verið verndað allt frá um 1970 og í hugum margra er sú ósnortna ásýnd táknræn fyrir staðinn og hluti af honum. Hamrabeltið við fossinn myndar fagra landslagsheild allt til Gljúfrabúa og hægt er að standa í töfraveröld undir fallandi vatnskrafti fossins. Mikill fjöldi ferðamanna sækir staðinn heim og ljóst að bæta þarf þjónustu við þá. Að frumkvæði sveitarstjórnar var svæðið deiliskipulagt og verkið hafið með þau heit að það yrði gert í samvinnu við landeigendur. Þau orð hafa því miður ekki gengið eftir. Nú hefur verið samþykkt deiliskipulagstillaga í sveitarstjórn sem innifelur að 2.000 fermetra og allt að 8 metra hátt mannvirki rísi á melunum sunnan húss Rangæingafélagsins. Það mun blasa við þegar ekið er austur og á hluta í sjónlínu við Seljalandsfoss. Ekki er útskýrt hvaða starfsemi á að vera í þessari 2.000 fermetra þjónustumiðstöð. Nefna má að stærð gestastofu á Hakinu á Þingvöllum er 200 fermetrar en verður stækkuð í 1.000 fermetra. Þar er um þjóðgarð að ræða en hvaða rök liggja fyrir því að við Seljalandsfoss rísi 2.000 fermetra þjónustumiðstöð? Útbúa þarf bílastæði og salernisaðstöðu sem eru til sóma. En þarf að reisa risastóra þjónustumiðstöð á þessu viðkvæma svæði? Á Hvolsvelli er ein slík í 20 mínútna akstursfjarlægð. Þarf aðra við Seljalandsfoss sem mun spilla ósnortinni ásýnd á viðkvæmu svæði? Það gera sér allir ljóst að stór bygging kallar á fleira fólk sem dvelur lengur og leggur meira álag á svæðið. Þolir svæðið við Seljalandsfoss þann fjölda? Hafa einhverjar rannsóknir verið gerðar á því? Hefur þarfagreining verið gerð? Hvaða rök liggja að baki? Eru það rök markaðshyggju eða umhverfishyggju? Á að reisa þarna risamatsölustað og túristaverslanir?Tillögunni sópað til hliðar Tillaga sem landeigendur við Seljalandsfoss lögðu til miðast við að byggja við svokallað Brekkuhorn sem liggur sunnan við fossinn og utan svæðis milli Hamragarða og Seljalandsfoss. Þar er mun hægara að fella byggingu að landslagi en tillögunni var sópað til hliðar með þeim rökum að hún ýti ekki undir heildarmynd staðarins. Það hljómar undarlega að heildarmynd staðar sem einkennist af ósnortnu landi eflist með risamannvirki í miðju þess! Ummæli Náttúrufræðistofnunar um þessa tillögu voru að henni mætti gefa meiri gaum. Eigendur Ytra-Seljalands sendu beiðni til sveitarstjórnar um að endurskoða niðurstöðu deiliskipulags vegna þess að staða sveitarfélagsins væri sú að þeir væru bæði eigendur hluta landsvæðisins og framkvæmdaaðili um deiliskipulag. Farið var fram á að fenginn yrði hlutlaus aðili sem tæki afstöðu til tillagnanna. Beiðninni var vísað frá. Sé reynt að gera sér í hugarlund hvernig umhorfs verður ef fyrirhuguð mannvirki rísa er ljóst að þegar horft verður frá nýjum Þórsmerkurvegi mun mikið mannvirki bera í svæðið milli Hamragarða og Seljalandsfoss og á kafla skyggja á fossinn. Auk 2.000 fermetra byggingar á 1-2 hæðum verða bílastæði með hópferðabifreiðum og fólksbifreiðum. Ósnortna myndin sem nú er yfir svæðinu mun heyra fortíðinni til. Að auki mun mikil umferð fólksbíla og fólksflutningabíla til og frá hringvegi hafa mikil áhrif á upplifun fólks – sem verða mun minni verði byggt samkvæmt tillögunni við Brekkuhornið. Fjöldamargar ljósmyndir hafa verið teknar af Seljalandsfossi sem birtast víða og eitt vinsælt sjónarhorn er tekið að baki fossins. Verði þetta mannvirki byggt samkvæmt tillögu sveitarstjórnar mun það bákn blasa við sjónum manna séð handan fossins.Aðrar þjóðir hafa lært af mistökum Það hefur verið tilhneiging í uppbyggingu ferðamannastaða að setja mannvirki nærri náttúruperlum. Aðrar þjóðir hafa lært af mistökum og staðsetja frekar bílastæði og önnur mannvirki í fjarlægð þannig að fólk upplifir náttúruperluna með að ganga að henni. Við Íslendingar ættum að geta tileinkað okkur þekkingu annarra án þess að gera mistökin sjálf. Umhverfi Seljalandsfoss er fagurt en mjög viðkvæmt, dýrmætur staður sem hægt er að eyðileggja og nú er verið að taka óafturkræfa ákvörðun fyrir komandi kynslóðir. Við blasir að að sú tillaga sem sveitarstjórn hefur samþykkt er vanhugsuð, gróðasjónarmið ráða og náttúrunni er fórnað. Engri annarri þjóð dytti í hug á okkar tímum að byggja svona ofan í náttúruperlur – slíkt á að heyra sögunni til, líka á Íslandi. Það sem ráði vali verði sönn náttúruvernd en ekki það að sveitarfélagið hyggst byggja í eigin landi – hvað sem það kostar náttúruna og þrátt fyrir vilja fólks til að vernda svæðið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Áminningarskyldan og þjónusta hins opinbera Kristján Páll Kolka Leifsson skrifar Skoðun 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar Skoðun X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun