Skólameistari kom fram við staðgengil sem aðstoðarmann Jóhann Óli Eiðsson skrifar 18. maí 2017 07:00 FVA kom verst allra framhaldsskóla út úr könnun SFR á stofnun ársins. vísir/pjetur
Fyrrverandi aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) hefur stefnt ríkinu til greiðslu launa og bóta vegna ólögmætrar uppsagnar á haustmánuðum 2015. Maðurinn hafði starfað við FVA í tæpa tvo áratugi við góðan orðstír þegar staða aðstoðarskólameistara, staðgengils skólameistara, var auglýst laus til umsóknar. Afréð hann að sækja um starfið meðal annars eftir hvatningu frá skólameistara. Í stefnu segir að samstarf aðstoðarskólameistara og skólameistara hafi gengið vel framan af. Hins vegar kom smám saman í ljós að skólameistari ætlaðist til annarra hluta af staðgengli sínum en féllu undir eðlilega túlkun á starfslýsingu hans. Í stefnu mannsins segir að skólameistari hafi litið svo á að hlutverk hans væri fyrst og fremst að vera aðstoðarmaður skólameistara í hverju því sem honum kæmi til hugar. Af þessum sökum kvartaði maðurinn til skólameistara og í kjölfarið fóru fram tveir fundir vegna málsins. Þar var aðstoðarskólameistaranum tilkynnt að hann stæði sig illa í starfi þó eigi væri tilgreint frekar hvar þá vankanta væri að finna. Þriðji fundur var áætlaður í lok september en ekki kom til hans þar sem aðstoðarskólameistaranum var án skýringa kynnt riftun á ráðningarsamningi hans. Við skoðun á aðdraganda riftunar og efni uppsagnarbréfsins taldi hann að brotið hefði verið á sér. Freistaði hann þess að afhenda skólameistaranum greinargerð um stöðu málsins en skólameistarinn neitaði að veita henni viðtöku. Degi síðar var maðurinn beðinn um að taka saman föggur sínar og mæta ekki frekar í skólann. Aðstoðarskólameistarinn fyrrverandi telur að riftunin hafi verið ólögmæt. Eigi hann því rétt á efndabótum, bótum fyrir ólögmæta uppsögn og miskabótum, alls rúmlega 63 milljónum króna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira