Íslenski boltinn

Úrslitaleikirnir færðir inn í Egilshöll

KR-ingar mæta Grindvíkingum í úrslitaleik Lengjubikars karla.
KR-ingar mæta Grindvíkingum í úrslitaleik Lengjubikars karla. vísir/andri marinó
Úrslitaleikirnir í Lengjubikar karla og kvenna hafa verið færðir inn í Egilshöll vegna slæmrar veðurspár. Til stóð að leikirnir færu fram á Valsvelli.

Úrslitaleikurinn karlamegin hefst klukkan 14:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD. Þar mætast KR og Grindavík.

KR bar sigurorð af FH, 2-1, í undanúrslitum á meðan Grindavík vann KA í vítaspyrnukeppni.

Kvennamegin mætast Breiðablik og Valur í úrslitaleiknum sem hefst klukkan 16:30.

Breiðablik vann ÍBV 3-0 í undanúrslitunum á meðan Valur bar sigurorð af Þór/KA, 2-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×