Bretar búa sig undir að færa lögin heim Guðsteinn Bjarnason skrifar 31. mars 2017 06:00 David Davis, Brexitráðherra bresku stjórnarinnar. vísir/epa
Bresk stjórnvöld búa sig nú undir að færa ákvæði þúsunda reglugerða og tilskipana frá Evrópusambandinu, sem hafa sem slík haft gildi í Bretlandi, beint inn í bresk lög – og þurfa að vera búin að því áður en úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu tekur gildi. David Davis, sem fer með málefni útgöngu Bretlands úr ESB í ríkisstjórn Theresu May, gerði breska þinginu stuttlega grein fyrir þessum áformum í gær. Hann sagði þessar breytingar jafnframt þýða að lögsaga Evrópudómstólsins næði ekki lengur til Bretlands. „Lögin okkar verða þá samin í London, Edinborg, Cardiff og Belfast og ekki túlkuð af dómurum í Lúxemborg heldur af dómurum í Bretlandi,“ sagði hann á þingi, samkvæmt frásögn BBC. Breski Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, hefur áhyggjur af því að þingið fái ekki að fylgjast nógu vel með þessum breytingum. Seint í gærkvöldi undirritaði Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, bréf þar sem hún fór með formlegum hætti fram á að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin í Skotlandi um aðskilnað landsins frá Bretlandi. Hefur Sturgeon sagt að Skotar eigi að fá að velja sína framtíð í kjölfar Brexit-atkvæðagreiðslunnar. Alls voru 62 prósent Skota á þeirri skoðun að Bretar ættu ekki að ganga út úr ESB. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Fleiri fréttir Deila um veru bandarískra skipa í Hormússundi Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Sjá meira