TF-LÍF leitaði að Birnu Brjánsdóttur Birgir Olgeirsson skrifar 19. janúar 2017 22:18 TF-LÍF þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, leitaði nú undir kvöld að Birnu Brjánsdóttur, sem saknað hefur verið síðan á aðfaranótt laugardag. Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan fimm og var meðal annars flogið yfir Hafnarfjarðarhöfn. Síðan var stefnan tekin með fram ströndinni, frá Straumsvík að Vogum á Vatnsleysuströnd. Þá var einnig flogið suður að Höskuldarvöllum og Keili. Um klukkan hálf sjö var leit hætt og haldið inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Sérhæft björgunarsveitarfólk er enn við leit á Strandarheiði. Um það bil 30 manns leita þar með fram vegarslóðum búið lýsingu og sérfræðiþekkingu á leit við erfiðar aðstæður. Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir fjöldi ábendinga berast lögreglu vegna hvarfs Birnu og í raun sé verið að leita að nánast öllu sem getur talist óvenjulegt á Strandarheiði og gæti mögulega hjálpað til við að upplýsa málið. Notast er við leitarhunda á Strandarheiði en búast má við björgunarsveitarfólk verði að störfum fram eftir kvöldi, eða þegar verkefni dagsins er lokið. Hann segir mikið hafa mætt á björgunarsveitarfólki undanfarna daga vegna leitarinnar en um sé að ræða þaulreynt fólk sem hefur komið að mörgum erfiðum leitum.
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fleiri fréttir Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Sjá meira