Mál lögreglumannsins fer fram fyrir luktum dyrum Birgir Olgeirsson skrifar 6. janúar 2017 14:48 Jens Gunnarsson mætir í dómssal í nóvember. Með honum á myndinni er Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, verjandi Péturs Axels. Vísir/Ernir
Dómari í máli rannsóknarlögreglumannsins sem sætir ákæru fyrir spillingu og brot í opinberu starfi, ákvað í dag að þinghald í málinu færi fram fyrir luktum dyrum. Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari og saksóknari í málinu, fór fram á við þingfestingu málsins í nóvember síðastliðnum að hluti aðalmeðferðar málsins færi fram fyrir luktum dyrum. Taldi hann að málflutningur og vitnaleiðslur kalli á það. Lögreglumaðurinn heitir Jens Gunnarsson en honum var vikið frá störfum þegar málið kom upp í lok árs árið 2015 og hefur verið frá störfum síðan. Hann er ákærður fyrir spillingu, brot gegn þagnarskyldu og brot í opinberu starfi. Auk hans eru tveir aðrir ákærðir í málinu sem Jens í átti í samskiptum við vegna starfs síns.Gottskálk mætir í dómssal ásamt verjanda sínum, Eiríki Elís Þorlákssyni.Vísir/ErnirAnnar þeirra, Pétur Axel Pétursson, á fimmtán ára sakaferill að baki en þyngsti dómurinn er sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu kannabisplantna og hass. Til viðbótar hefur honum verið gerð sex sinnum refsing fyrir fíkniefnabrot. Þriðji maðurinn, Gottskálk Ágústsson framkvæmdastjóri hjá Öryggismiðstöðinni, er svo ákærður fyrir að samskipti við lögreglumanninn sem var lofað tveimur flugmiðum og hálfri milljón í peningum fyrir að útvega manninum skýrslu PriceWaterHouseCoopers um Kaupþing banka. Allir neituðu þeir sök við þingfestingu málsins. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Péturs Axels, fór fram á að þinghald verði alfarið lokað en dómari ákvað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að svo yrði.Fjórir ákæruliðir Ákæruliðirnir sem snúa að lögreglumanninum eru alls fjórir og er fjallað um þá hér að neðan. Í fyrsta lið ákærunnar er lögreglumaðurinn Jens, sem starfaði í fíkniefnadeild lögreglunnar, ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í starfi og Pétur Axel er ákærður fyrir hlutdeild í broti lögreglumannsins. Er því lýst í ákærunni að þeir hafi hist í Öskjuhlíð í Reykjavík síðsumars eða síðla hausts 2015. Á fundi þeirra á lögreglumaðurinn að hafa upplýst Pétur Axel um að hann hefði ekki heyrt minnst á hann hjá samstarfsmönnum sínum í deildinni í einn og hálfan til tvo mánuði. Þá á hann einnig að hafa greint Pétri frá innra skipulagi og málefnum fíkniefnadeildar auk þess að greina honum frá nöfnum og hlutverki lögreglumanna í deildinni. Þá á Jens einnig að hafa upplýst ítrekað um skráningar í upplýsingakerfi lögreglunnar sem heldur utan um fíkniefnamál, mansal og vændi þegar upplýsingar sem vörðuðu manninn voru skráðar þar. Gerðist þetta frá árinu 2013 til ársloka 2015 og er Pétur Axel ákærður fyrir að hafa hvatt Jens til þess að láta sér upplýsingarnar í té.Sakaður um að hafa sent manninum sms og heimtað pening Í öðrum lið ákærunnar eru Jens og Pétur Axel ákærðir fyrir spillingu. Er lögreglumanninum gefið að sök að hafa látið meðákærða „lofa sér og tekið við frá honum Nokia 130 síma, og í lok mars 2015 eða síðar móttekið Samsung Galaxy fame síma að andvirði kr. 19.990 [...] í tengslum við starf ákærða [...] sem lögreglumaður,“ að því er segir í ákæru. Jens er einnig ákærður fyrir spillingu vegna sms-skilaboða sem hann sendi Pétri Axel í ágúst 2012 þar sem hann á að hafa heimtað pening af manninum.Ætlaði að láta manninn hafa skýrslu frá slitastjórn Kaupþings Þriðji liður ákærunnar snýr einnig að spillingu og er Jens ákærður auk Gottskálks. Á Jens að hafa verið í sms-samskiptum við manninn þar sem hann lét lofa sér hálfri milljón í peningum og tveimur flugmiðum með WOW air gegn því að lögreglumaðurinn útvegaði Gottskálki skýrslu PriceWaterHouseCoopers um Kaupþing banka sem bar yfirskriftina „Slitastjórn Kaupþings banka hf. „Project Staying Alive“ September 2010. Strictly confidential.“Ákærður fyrir stórfellda og ítrekað vanrækslu og hirðuleysi í starfi Í fjórða lið ákærunnar er Jens svo ákærður fyrir brot í opinberu starfi. Á hann að hafa „gerst sekur um stórfellda og ítrekaða vanrækslu og hirðuleysi í starfi sínu, með því að varðveita 1,18 grömm af amfetamíni og 10 millilítra af vefaukandi sterum af gerðinni bodenón undecýlenat og 20 millilítra af testósterón prípíónati í skrifborðsskúffu á vinnustað sínum [...]“ eins og segir í ákæru. Þá er Jens einnig ákærður fyrir stórfellda og ítrekaða vanrækslu og hirðuleysi í starfi sínu „með því að hafa varðveitt tvær loftskammbyssur í skrifborðsskúffu á vinnustað sínum, en ákærði sem taldi byssurnar hafa verið haldlagðar af lögreglu, gat ekki skýrt hvaða máli þær tengdust, en þær átti að varðveita í geymslu fyrir haldlagða muni.“
Fréttir af flugi Tengdar fréttir Jens neitar sök og farið fram á lokað þinghald Þingfest var í máli fíkniefnalögreglumanns sem grunaður er um spillingu. Auk hans eru tveir ákærðir fyrir óeðlileg samskipti við lögreglumanninn. 28. nóvember 2016 11:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Jens neitar sök og farið fram á lokað þinghald Þingfest var í máli fíkniefnalögreglumanns sem grunaður er um spillingu. Auk hans eru tveir ákærðir fyrir óeðlileg samskipti við lögreglumanninn. 28. nóvember 2016 11:00