Éljagangur í dag en norðanstórhríð út vikuna Samúel Karl Ólason skrifar 15. nóvember 2016 07:45 Draga mun úr vindi og éljagangi í kvöld og nótt, en á morgun mun vindurinn snúast í norðan 10-18 með éljum á norðanverðu landinu. Vísir/Pjetur
Reikna má með hvassviðri í dag og skúra- eða éljaveðri. Vindurinn verður þó hægari á norðausturhluta landsins. Hiti verður um eitt til sex stig. Á morgun snýst hins vegar í norðanátt með éljagangi eða snjókomu fyrir norðan og á fimmtudaginn er spáð norðanstórhríð fyrir norðan og að hún gangi ekki niður fyrr en á sunnudag og mánudag. Sunnar á landinu mun létta til og kólna samkvæmt Veðurstofu Íslands. Í dag er gert ráð fyrir suðvestan 13-20 m/s en 15-23 undir hádegi. Draga mun úr vindi og éljagangi í kvöld og nótt, en á morgun mun vindurinn snúast í norðan 10-18 með éljum á norðanverðu landinu. Þá er tekið fram á vef Veðurstofunnar að á þessum degi árið 1985 hafi orðið mikið tjón í ofsaveðri hér á landi. Bílar hafi fokið út af og festar báta og skipa hafi slitnað. Þá hafi jafnvel heilu þökin fokið af húsum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðan og norðvestan 10-18 m/s og snjókoma eða éljagangur á N-verðu landinu, hvassast á annesjum, en hægara og bjart með köflum syðra. Víða frostlaust við ströndina, en frost annars 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Norðan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur N-til, en úrkomulítið fyrir sunnan. Frost víða 0 til 5 stig. Á föstudag: Áfram norðanstórhríð með ofankomu fyrir norðan, jafnvel rigningu við ströndina, en bjartviðri S-lands. Hlýnar dálítið í veðri. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með éljagangi fyrir norðan, en bjartviðri syðra. Svalt í veðri. Á mánudag: Lægir, léttir til og kólnar.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira