FH-ingar hafa rætt við Kristin Frey Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2016 08:30 Kristinn Freyr Sigurðsson í leik á móti FH í sumar. Vísir/Hanna
Kristinn Freyr Sigurðsson fór á kostum með bikarmeisturum Vals í Pepsi-deild karla í fótbolta í sumar og það þarf ekki að koma á óvart að bæði lið hérlendis sem og erlendis hafi áhuga á kappanum. Kristinn Freyr fékk silfurskóinn og var kosinn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar af leikmönnunum sjálfum en hann skorað þrettán mörk í 21 leik Pepsi-deildinni í sumar. Kristinn Freyr er að verða 25 ára gamall og þetta var hans fimmta tímabil á Hlíðarenda en hann er uppalinn Fjölnismaður. Nú horfir Kristinn Freyr hinsvegar á möguleikann á því að komast út í atvinnumennsku. „Ég hef heyrt frá Sundsvall og Östersund og það er líklegt að ég fari út í næsta mánuði og skoði aðstæður hjá þeim,“ sagði Kristinn Freyr Sigurðsson í viðtali við Guðmund Hilmarsson í Morgunblaðinu í dag. Valsmenn gætu fengið samkeppni frá Íslandsmeisturum FH fari svo að Kristinn Freyr spili áfram á Íslandi. Hann er því í góðri samningsstöðu í vetur. „Valur vill halda mér og FH hefur rætt við mig svo það er að ýmsu að hyggja. Ég hef ekkert farið leynt með það að mig langar að spreyta mig í atvinnumennskunni,“ sagði Kristinn Freyr og bætti við: „Ég verð 25 ára gamall í desember og er kannski að renna út á tíma hvað það varðar en mikilvægast af öllu er að taka rétta ákvörðun á þessum tímapunkti,“ sagði Kristinn Freyr í fyrrnefndu viðtali.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Íslenski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Í beinni: Sunderland - Arsenal | Gerir Xhaka gamla liði sínu skráveifu? Enski boltinn Fleiri fréttir Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ Sjá meira