Skoðun

Varnarvísitala lágtekjufólks

Ögmundur Jónasson skrifar
Tillaga: Samið verði um vísitölubundið launabil. Fjármálaráðuneytið eða stofnanir sem undir það heyra semji á þann veg í kjarasamningum að lægstu föstu launagreiðslur verði aldrei lægri en þriðjungur af hæstu föstu launagreiðslum.

Krafan um hækkun lægstu launa er virðingarverð og ber að styðja af alefli. Viðleitni okkar á hins vegar ekki einvörðungu að snúa að lægstu töxtum heldur að því að gera launakerfið í heild sinni réttlátara með því að tryggja að lægstu laun fylgi að lágmarki þróun hæstu launa. Ákjósanlegast væri að launabilið yrði talsvert minna en nemur þreföldum mun en með þessari launastefnu yrði engu að síður dregið úr kjaramisréttinu.

Í stað þess að beðið sé eftir því að gengið hafi verið frá samningum láglaunamannsins svo smyrja megi á kjör hátekjufólksins, þá yrði nú byggð inn í kerfið eins konar varnarvísitala fyrir lægstu launin. Annar kostur og betri væri að ákveða fyrst kjör hinn hæstu og ganga að því búnu frá almennum kjarasamningum. Ella kæmi til kasta varnarvísitölunnar. Þegar vísað er til fastra greiðslna er ekki einvörðungu átt við sjálfan launataxtann heldur einnig aðrar fastar greiðslur, þ.e. hvers kyns álag og fríðindi sem flokka má til ávinnings. Sveitar­félögin verði hvött til þess að fylgja einnig þessari stefnu.

Enda þótt launabilið hjá hinu opinbera sé óásættanlega mikið, þá er ranglætið hjóm eitt miðað við almenna markaðinn þar sem sjálftökumenn skammta sér í mánaðartekjur jafnvel margföld árslaun verkafólks. Með löggjöf verður þetta ekki lagað en fordæmi almannaþjónustunnar gæti orðið siðferðilegur vegvísir. Þá má ætla að samningamenn reyndu að koma ákvæðum um varnarvísitölu lágtekjufólks inn í kjarasamninga á almenna markaðnum. Viðmiðið gæti verið meðaltalslaun stjórnar Samtaka atvinnulífsins. Án öryggistappa af þessu tagi yrði víðtækt handjárnað samflot á launamarkaði alltaf á forsendum hátekjufólksins. Enda mikill ákafi þar á bæ að koma slíku fyrirkomulagi á.

Síðan kæmu hátekjuskattar til sögunnar til að draga úr grófasta misréttinu sem út af stæði.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×