Stuðningsmenn Hamburg hefja undirskriftasöfnun til að fá Will Grigg Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2016 14:35 Will Grigg er vinsæll. vísir/getty
Norður-Írinn Will Grigg sló í gegn á EM í Frakklandi þrátt fyrir að hafa ekki spilað mínútu á mótinu. Stuðningsmenn N-Írlands voru duglegir að kyrja lagið „Will Grigg's On Fire“ í Frakklandi en sá sem ýtti þessum snjóbolta af stað var Sean Kennedy, stuðningsmaður Wigan Athletic sem Grigg spilar með. Kennedy birti í vetur myndband á YouTube þar sem hann söng sinn eigin texta um Will Grigg við lagið „Freed From Desire“ frá 10. áratug síðustu aldar. Kennedy fékk ársmiða hjá Wigan að launum en hann óraði eflaust ekki fyrir hversu mikilli útbreiðslu lagið hefur náð. Nú hafa stuðningsmenn þýska úrvalsdeildarliðsins Hamburg hafið undirskriftasöfnun til að fá Grigg til liðsins. Rúmlega 7600 manns hafa skrifað undir en þeir sem standa að undirskriftasöfnuninni telja að það muni margborga sig fyrir Hamburg að kaupa Grigg, í gegnum markaðssetningu og svo muni koma hans bæta stemmninguna á heimaleikjum liðsins. Grigg, sem er 24 ára, var markahæstur í ensku C-deildinni á síðasta tímabili. Hann hefur verið orðaður við lið á borð við Celtic, Nottingham Forest og Hull City að undanförnu.Skrifa má undir áskorun stuðningsmanna Hamburg með því að smella hér.
EM 2016 í Frakklandi Þýski boltinn Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fótbolti Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Enski boltinn Martröð Norðmanna heima fyrir: „Gjörsamlega hræðilegt“ Handbolti Elliði skipti út rauðu skónum eftir rauðu spjöldin Handbolti Fleiri fréttir Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Sjá meira