Næsta brekka reynst of brött fyrir Lars Lagerbäck Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. júní 2016 07:00 Lars Lagerbäck sést hér hugsi á blaðamannafundi Íslands í gær. Hann fær nú tækifæri til að komast lengra en nokkru sinni fyrr á sínum þjálfaraferli. Vísir/Vilhelm
Lars Lagerbäck hefur þrisvar í sex tilraunum komið liði upp úr riðli á Evrópumóti eða í heimsmeistarakeppni en hann hefur aldrei farið í gegnum fyrsta leik í útsláttarkeppni. Hann reynir nú í fjórða sinn. Tveir dagar eru þar til íslenska landsliðið í fótbolta mætir því enska í 16 liða úrslitum á EM 2016. Strákarnir okkar eru aðeins þriðja liðið í sögunni sem tapar ekki leik í riðlakeppni EM í frumraun sinni og í verðlaun fékk liðið og íslenska þjóðin leik gegn stjörnunum úr ensku úrvalsdeildinni. Þetta verður fyrsti mótsleikur liðanna í sögunni. Lars Lagerbäck, annar landsliðsþjálfara Íslands, er töluvert reyndari á stórmótum en allir aðrir í íslenska hópnum. Hann er á sínu sjöunda stórmóti en áður fór hann fimm sinnum á stórmót með Svíþjóð (HM 2002 og 2006 og EM 2002, 2004 og 2008) og með Nígeríu á HM 2010. Í helming skiptanna sem hann fór á stórmót áður tókst Svíanum að koma sínu liði upp úr riðli. Það gerði hann á þremur stórmótum í röð með Svíþjóð frá 2002-2006, tvisvar á HM og einu sinni á EM. Hann kom Svíþjóð einu sinni upp úr riðli í þremur tilraunum á EM og er nú ásamt Heimi Hallgrímssyni búinn að koma Íslandi áfram í fyrstu tilraun.Tvö grátleg töp Árangur Lars Lagerbäck í útsláttarkeppni er ekki góður. Hann tapaði öllum þremur leikjunum með Svíþjóð í útsláttarkeppni og tveimur þeirra afar grátlega. Á HM 2002 var Svíþjóð í gríðarlega sterkum riðli með Englandi, Argentínu og Nígeríu en gerði sér lítið fyrir og vann riðilinn. Sænska liðið var firnasterkt á þessum tíma en féll úr leik á gullmarki gegn spútnikliði Senegal, 2-1, í framlengdum leik í 16 liða úrslitum. Fjórum árum síðar á HM tapaði Svíþjóð nokkuð sannfærandi gegn gestgjöfum Þýskalands, 2-0. Þar á milli kom Lars sænska liðinu í átta liða úrslit EM (16 liða mót) en tapaði fyrir Hollandi í vítaspyrnukeppni sem fór í bráðabana. Olof Mellberg reyndist skúrkurinn þar þegar hann brenndi af sjöttu spyrnu Svíþjóðar en Arjen Robben, sem var þarna að skjótast upp á stjörnuhimininn, skoraði úr síðustu spyrnu Hollendinga. Þrátt fyrir þennan árangur er Lars Lagerbäck alltaf bjartsýnn og telur íslenska liðið eiga möguleika á sigri þó að brekkan sem hann hefur ekki enn komist yfir sé líklega brattari núna en nokkru sinni áður. „Ég tel okkur alltaf eiga möguleika,“ sagði Lars sem státar af frábærum árangri gegn enska landsliðinu. Hann hefur sex sinnum spilað við það á sínum ferli, alltaf með Svíþjóð, og aldrei tapað. Þar af er um að ræða sex mótsleiki. „Ég hef alltaf trú á að við getum unnið,“ sagði Lars í gær, en hvers vegna þessi góði árangur gegn Englandi? „Það er gott að spila við England því það þekkja allir í Svíþjóð líkt og á Íslandi enska boltann. Allir leikmennirnir mínir þekkja þá ensku, hvernig þeir eru og hvernig þeir spila. Í Svíþjóð byggðum við að hluta til á hugmyndafræði Roy Hodgson og Bob Hougton þannig að við þekktum enska boltann og hans hugmyndafræði. Þetta hjálpar allt til,“ sagði Lars.Lars Lagerbäck.Vísir/VilhelmGeta ekki verið guðir í öllu Sænski blaðamaðurinn Robert Laul hjá Aftonbladet í Svíþjóð hefur fylgt íslenska liðinu hvert fótmál á Evrópumótinu. Hann fylgdist með sænska liðinu allan tímann sem Lagerbäck var þar við stjórnvölinn. Þeir voru vissulega engir vinir þá en hafa verið kumpánlegir hvor við annan í Frakkland. Laul ber mikla virðingu fyrir samlanda sínum og hans afrekum en hefur sínar útskýringar á því hvers vegna lið Lagerbäcks fara aldrei í gegnum fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. „Menn geta ekki verið guðir og snillingar í öllu. Lars er sérfræðingur í því að komast í lokakeppnir og koma liðum upp úr riðli á stórmótum en hann er ekki þjálfari sem vinnur leiki í útsláttarkeppni. Hann rígheldur í sína hugmyndafræði sem er ekki fullkomin ef þú ætlar að vinna leiki í útsláttarkeppni því hún er ansi varnarsinnuð. Hann kemur liðum á stórmót og upp úr riðli en meira er það ekki. Það er alls ekkert slæmt en þetta er eitthvað sem allir þurfa að sætta sig við,“ sagði Laul í samtali við Fréttablaðið. „Lagerbäck nær öllu út úr liðunum sem hann þjálfar eins og hann hefur gerst með Ísland. Það er samt ekki hægt að fá kökuna og borða hana líka. Ísland er ekki með hæfileikaríkasta liðið frekar en Svíþjóð var með. Hann kreistir allt sem hægt er út úr liðinu en hann getur ekki komist lengra en þetta. Það eru leikmenn íslenska liðsins sem þurfa að bæta leik sinn ætli þeir að komast í gegnum England. Lagerbäck getur ekki töfrað þá áfram.“Endar gegn Englandi Eins og fleiri hefur Laul heillast af íslenska liðinu en hann er klár á því að það fari ekki lengra í mótinu. „Íslenska liðið hefur ekki andlegan styrk í að endurhlaða batteríin og gera betur en það hefur gert. Það sem liðið hefur afrekað hefur kostað mikla orku og það hefur hvorki andlegan né líkamlegan styrk til að keyra sig upp aftur. Þetta endar gegn Englandi sem er synd því það hefur verið æðislegt að fylgjast með þessu ævintýri,“ sagði Robert Laul.Lars Lagerbäck með sænska landsliðinu á EM 2008.Vísir/GettyÁrangur Lars Lagerbäck í útsláttarkeppnum á stórmótum:Svíþjóð á EM 2000: Komst ekki áfram, neðsta sæti í riðlinumSvíþjóð á HM 2002: Tap fyrir Senegal, 2-1, á gullmarki í framlengdum leik í 16 liða úrslitumSvíþjóð á EM 2004: Tap fyrir Hollandi í vítaspyrnukeppni í 8 liða úrslitumSvíþjóð á HM 2006: Tap fyrir gestgjöfum Þýskalands, 2-0, í 16 liða úrslitumSvíþjóð EM 2008: Þriðja sæti í riðlinum og komst ekki áframNígería á HM 2010: Komst ekki áfram, neðsta sæti í riðlinumLars Lagerbäck sem þjálfari Svía á EM.Vísir/EPA
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Tengdar fréttir Lars: „Ég er kominn heim“ hitti mig beint í hjartastað Íslenski landsliðsþjálfarinn talaði fallega um eitt helsta lag stuðningsmanna íslenska landsliðsins. 23. júní 2016 12:04 Lars: Sérstakara að vera með Íslandi á stórmóti Landsliðsþjálfarinn er á sjöunda stórmótinu með þriðja liðinu en þessi upplifun er sú besta hjá Svíanum. 24. júní 2016 09:21 Lagerbäck: Eiður kom með sterk skilaboð á liðsfundi Það hafa allir í íslenska landsliðshópnum tröllatrú á því að Ísland geti lagt England að velli í 16-liða úrslitum EM á mánudag. 24. júní 2016 19:30 Lagerbäck: Öfunda ekki Portúgal Landsliðsþjálfarinn var hæstánægður með frammistöðu sinna manna gegn Austurríki í gær. 23. júní 2016 14:15 Lars vísaði til Einstein og Emmi horfir á smáhund elta nashyrning "Ég beiti engum brögðum en á fundum finnum við stundum kvót í nálgun okkar hvað varðar hugarfar,“ segir Lars Lagerbäck. 24. júní 2016 09:22 Skora á Lars að halda áfram með landsliðið Íslendingar virðast ekki tilbúnir að kveðja Lars Lagerbäck. 24. júní 2016 08:30 Mest lesið Uppgjörið: Króatía - Danmörk 26-32 | Danir heimsmeistarar fjórða sinn í röð Handbolti Snorri Steinn um Gunna Magg málið: „Það er kjánaskapur að halda því fram“ Handbolti Ein stærstu og óvæntustu skipti sögunnar Körfubolti „Íslensku konurnar sem breyttu CrossFit heiminum að eilífu“ Sport Neitaði að heilsa skákkonunni en bætti fyrir það með stæl Sport Skytturnar gengu frá Englandsmeisturunum Enski boltinn Hákon fékk fyrst á sig sjálfsmark og svo var hann klobbaður Enski boltinn Mateta skaut niður Man. United á Old Trafford Enski boltinn Snorri Steinn heldur með Degi: „Ég vona innilega að hann vinni“ Handbolti „Vertu auðmjúkur“ leikurinn, taka tvö Enski boltinn Fleiri fréttir Stjarnan/Álftanes fagnaði sigri en Víkingur heldur titlinum Róbert Orri semur við Víkinga Orri skoraði annan leikinn í röð Skytturnar gengu frá Englandsmeisturunum Mateta skaut niður Man. United á Old Trafford Albert skoraði á móti gömlu félögunum Hákon fékk fyrst á sig sjálfsmark og svo var hann klobbaður Hákon byrjar sinn fyrsta leik í ensku deildinni Lewandowski tryggði Barcelona sigur Manchester United búið að kaupa Danann frá Lecce „Vertu auðmjúkur“ leikurinn, taka tvö Salah orðinn sá sjötti markahæsti í sögunni: „Erum á réttri leið“ United sækir annað ungstirni frá Arsenal Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Madrídingar misstigu sig gegn fallbaráttuliði Espanyol Úlfarnir héldu út og fjarlægjast fallsvæðið Botnliðið vann mikilvægan sigur og Everton fór illa með Refina Kane með tvö mörk þegar Bæjarar sluppu með skrekkinn Hafdís Nína með þrennu í stórsigri á Færeyjum Salah sá um sjóðheita Bournemouth-menn Elanga og Wood með þrennur þegar Forest skoraði sjö mörk Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Cecilía Rán hélt markinu hreinu í áttunda sinn Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Neymar fær að spila í treyjunni hans Pele Freyr fagnaði sigri í fyrsta leiknum með Brann Guy Smit frá KR til Vestra Ensk landsliðskona sakar Man City um mannorðsmorð Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Sjá meira
Lars: „Ég er kominn heim“ hitti mig beint í hjartastað Íslenski landsliðsþjálfarinn talaði fallega um eitt helsta lag stuðningsmanna íslenska landsliðsins. 23. júní 2016 12:04
Lars: Sérstakara að vera með Íslandi á stórmóti Landsliðsþjálfarinn er á sjöunda stórmótinu með þriðja liðinu en þessi upplifun er sú besta hjá Svíanum. 24. júní 2016 09:21
Lagerbäck: Eiður kom með sterk skilaboð á liðsfundi Það hafa allir í íslenska landsliðshópnum tröllatrú á því að Ísland geti lagt England að velli í 16-liða úrslitum EM á mánudag. 24. júní 2016 19:30
Lagerbäck: Öfunda ekki Portúgal Landsliðsþjálfarinn var hæstánægður með frammistöðu sinna manna gegn Austurríki í gær. 23. júní 2016 14:15
Lars vísaði til Einstein og Emmi horfir á smáhund elta nashyrning "Ég beiti engum brögðum en á fundum finnum við stundum kvót í nálgun okkar hvað varðar hugarfar,“ segir Lars Lagerbäck. 24. júní 2016 09:22
Skora á Lars að halda áfram með landsliðið Íslendingar virðast ekki tilbúnir að kveðja Lars Lagerbäck. 24. júní 2016 08:30