Örugglega nýtt Íslandsmet hjá Óttari | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2016 16:00
Ólsarinn Óttar Ásbjörnsson setti nær örugglega nýtt Íslandsmet í sínum fyrsta leik í Pepsi-deild karla í fótbolta á mánudagskvöldið. Víkingur Ólafsvík vann 3-0 sigur á nágrönnum sínum af Akranesi og nýliðarnir hafa þar með nælt í tíu stig í fyrstu fjórum umferðum Pepsi-deildarinnar. Óttar Ásbjörnsson sem er aðeins tvítugur kom inná sem varamaður á 89. mínútu leiksins en staðan var þá orðin 3-0 fyrir Ólafsvíkinga. Þetta var fyrsti leikur hans í Pepsi-deildinni á ferlinum. Óttar Ásbjörnsson kom inná fyrir William Dominguez Da Silva og dómarinn flautaði leikinn á þegar 88:41 eru á klukkunni. Vallarvörðurinn rétt nær að tilkynna það að þetta sé fyrsti leikur Óttars í Pepsi-deildinni áður en Gunnar Sverrir Gunnarsson dómari flautar leikinn á. Óttar ætlar ekki að gefa neitt eftir í sínum fyrsta leik og tæklar Skagamanninn Þórð Þorstein Þórðarson eftir aðeins átta sekúndur. Gunnar Sverrir dómari dæmir aukaspyrnuna á 88:51 og lyftir síðan gula spjaldinu þrettán sekúndum eftir að hann flautaði leikinn á eftir skiptinguna. Óttar Ásbjörnsson var því aðeins búinn að spila í Pepsi-deild karla í þrettán sekúndur þegar hann var kominn í bókina hjá dómaranum. Skýringin hjá Óttar var einföld: Dýfa hjá ÞÞÞ. Eins og sést á myndbandinu þá var hann bara alltof seinn og því hárrétt ákvörðun hjá Gunnari Sverri að gefa honum spjald. Það er hægt að sjá þessi fyrstu sport Óttars Ásbjörnssonar í Pepsi-deildinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Sjá meira