Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Valur Páll Eiríksson skrifar 23. júlí 2026 10:01 Jón Þór var gegndrepa eftir æfingu gærdagsins. Sýn „Við erum mjög spenntir og vel undirbúnir. Við hlökkum til að takast á við þetta verkefni,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, um leik hans manna við Ilves frá Finnlandi í Sambansdeild Evrópu í kvöld.
Stjarnan sló Víking Götu frá Færeyjum út í síðustu umferð og leikur kvöldsins fyrri leikurinn gegn finnskum andstæðingi, sem fram fer klukkan 19:00 á Samsung-vellinum. Ilves átti góða leiktíð í fyrra og tryggði sér Evrópusæti en svipað og Stjarnan hér heima, hefur gefið á bátinn á nýrri leiktíð þar sem Ilves situr í áttunda sæti þar ytra. Nýr þjálfari tók nýverið við og er að koma sínu handbragði á liðið, líklega svipað og Jón Þór hefur sjálfur reynt við í Garðabæ að undanförnu, eftir að hann tók við af Jökli Elísabetarsyni. Klippa: Jón Þór spenntur fyrir leik kvöldsins „Þetta er gott lið. Finnska deildin er hörkudeild og þetta er lið sem átti frábært tímabil í fyrra en hikstaði svo aðeins í upphafi móts núna, eins og fleiri lið, og eru nýbúnir að ráða spænska þjálfara sem er væntanlega núna leik fyrir leik að setja sitt handbragð á hlutina,“ segir Jón Þór og bætir við: „Það gerir okkur aðeins erfitt fyrir að lesa í þá nákvæmlega. En við gerum það eftir fremsta megni. Þetta er vel mannað og hörkulið.“ Stjarnan fékk vænan skell í síðasta leik í Bestu deildinni er Garðbæingar töpuðu 5-0 fyrir KR í Vesturbænum. Það var stærsta tap Stjörnunnar í deild í fjögur ár. Jón Þór segir þeim leik hafa verið hent í ruslið. „Það hefur gengið rosalega vel. Strákarnir eru einsettir að gera vel í þessu verkefni sem er fram undan og horfa fram veginn. Við skildum þetta bara eftir búningsklefanum í síðasta leik og byrjuðum strax að huga að þessu verkefni. Það eru allir klárir í það.“ Hver er lykillinn að sigri í kvöld? „Við þurfum náttúrulega bara að ná fram okkar besta leik og nýta okkar styrkleika fyrst og fremst. Við þurfum að geta haldið í boltann og ná að sækja á þá þar sem þeir eru veikastir fyrir. Þeir eru með fimm manna vörn og mjög þéttir fyrir, svo við þurfum að komast í kringum þá og á bakvið þá. Við erum vel undir það búnir og vonandi náum við hörkuframmistöðu. Þá verður Stjörnuliðið í fínum málum hérna á Samsung, það er klárt,“ segir Jón Þór. Jón Þór var þá gegndrepa eftir æfingu gærdagsins er hann var tekinn tali. Hann hefur líkt og aðrir á suðvesturhorninu þurft að þola mikla grámyglu og rigningatíð að undanförnu og hlakkar til sólarspár kvöldsins. Sem vonandi hvetji fleiri til að mæta á völlinn. „Það er að létta til í Garðabænum og ég hvet alla til þess að mæta. Silfurskeiðina bæði unga og gamla að flykkjast á völlinn á Evrópukvöldi. Það er einstakt hérna á Samsungvellinum,“ segir Jón Þór. Evrópuleikir dagsins: 16:30 RFS - Vestri (Sýn Sport Ísland 2) 19:00 Stjarnan - Ilves (Sýn Sport Ísland 2) 19:15 Valur - Zrinjski Mostar (Sýn Sport Ísland)
Stjarnan Besta deild karla Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira