„Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 23. júlí 2026 22:07 Chris Brazell gat leyft sér að brosa í leikslok. valur Valur vann sinn fyrsta leik undir stjórn Chris Brazell sem aðalþjálfara, þegar liðið lagði Zrinjski að velli 1-0 að Hlíðarenda í kvöld. Að vonum var Brazell sáttur eftir leikinn. „
Það er auðvelt að segja það að leikplanið gangi upp þegar að þú vinnur, en þetta var mjög erfiður leikur. Þetta einvígi er bara hálfnað og það verður erfiður leikur út í Bosníu. Fyrsta tilfinningin eftir þennan leik er þó sú að ég er hæstánægður fyrir hönd strákanna, sérstaklega í ljósi síðastliðna vikna og mánaða sem ég hef verið hér hjá félaginu. Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri. Sama hvort leikplanið gekk eftir eða ekki, ég er ekki viss, þá unnum við leik gegn feikilega sterku liði hér á heimavelli eftir erfiða undanfarna leiki. Við munum njóta þessi í bili,“ sagði Brazell eftir leikinn í kvöld. „Ég hef ekki gagnrýnt strákanna í síðustu leikjum enda hafa þeir sýnt það sem þeir sýndu í dag í undanförnum leikjum, allavegana á köflum. Við framkvæmdum það kannski betur í gegnum leikinn í kvöld. Í kvöld fengu þeir verðlaun erfiði síns. Auðvitað þurfti heppni á köflum en eins og ég segi þá vorum við að spila gegn mjög sterku liði.“ Mótherji Vals í kvöld, Zrinjski, hefur sýnt frábæra frammistöðu undanfarin ár í Sambandsdeildinni og átt í alvöru einvígjum gegn liðum úr Ensku úrvalsdeildinni. Chris Brazell segir sitt lið hafa þurft á heppni að halda í kvöld, sem liðið nýtti sér. „Þetta er lið sem spilaði jafna leiki og viðureignir við Aston Villa og Crystal Palace á síðustu tveimur tímabilum. Þannig að við vorum aldrei að fara að vanmeta þetta lið og við vissum að þeir myndu eiga sín augnablik í leiknum, sem þeir áttu. Við þurftum á heppninni að halda og við nýttum okkur það og það var margt í okkar frammistöðu sem var frábært. Það hafði ekkert að gera með mig, en starfsliðið og leikmennirnir sýndu af sér góða vinnu og vonandi getum við byggt á þessu í næstu viku.“ En hvað gefur þessi frammistaða og úrslit liðinu í síðari leikinn í næstu viku? „Þetta gefur okkur forskot en ég er ekki að fara vera of kokhraustur hvað varðar þetta einvígi. Ég veit að síðari leikurinn verður erfiður. Ég held að nálgun okkar á þennan leik var raunsæ, við vissum að þetta yrði erfitt og við vildum sýna hvað í okkur býr og íslenskri knattspyrnu. Við munum reyna að gera það í næstu viku, en áður en við gerum það þá ætlum við að njóta sigursins eftir nokkrar vikur án sigurs,“ svaraði Brazell.
Sambandsdeild Evrópu Valur Tengdar fréttir „Sigurinn nærir“ „Þetta var bara hörku leikur og við spiluðum bara eins og við erum búnir að vera að reyna að setja upp og það tókst í dag. Þetta var flottur sigur,“ sagði Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Vals, eftir flottan 1-0 sigur á Zrinjski að Hlíðarenda í kvöld. Skoraði Tryggvi Hrafn eina mark leiksins á 64. mínútu. Var þetta fyrri leikur liðanna í 2. umferð forkeppnar Sambandsdeildarinnar. 23. júlí 2026 21:44 Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Sjá meira
„Sigurinn nærir“ „Þetta var bara hörku leikur og við spiluðum bara eins og við erum búnir að vera að reyna að setja upp og það tókst í dag. Þetta var flottur sigur,“ sagði Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Vals, eftir flottan 1-0 sigur á Zrinjski að Hlíðarenda í kvöld. Skoraði Tryggvi Hrafn eina mark leiksins á 64. mínútu. Var þetta fyrri leikur liðanna í 2. umferð forkeppnar Sambandsdeildarinnar. 23. júlí 2026 21:44