Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 11:32 William Saliba er búinn að pína sig lengi og spila í gegnum bakmeiðslin en á HM sagði líkaminn að nú væri nóg komið. Getty/Chris Brunskill Englandsmeistarar Arsenal þurfa að fara inn í titilvörnina án eins síns traustasta varnarmanns.
Franski miðvörðurinn William Saliba getur ekki klárað heimsmeistaramótið vegna meiðsla og nú berast slæmar fréttir frá Arsenal. Frakkinn verður frá keppni í langan tíma. Í undanúrslitaleiknum gegn Spáni á HM þurfti William Saliba að fara af velli strax í fyrri hálfleik vegna meiðsla. Stuttu síðar bárust fregnir frá franska stórblaðinu L'Equipe um að miðvörðurinn yrði frá í fjóra til fimm mánuði og að vandamálið væru langvinnir bakverkir. Nú staðfestir Arsenal, félag leikmannsins, að hann verði frá keppni í langan tíma vegna bakmeiðsla. „Endurhæfing Williams hefst strax með stöðugu eftirliti með meiðslunum og búist er við að hann verði frá keppni í langan tíma,“ skrifaði Arsenal á heimasíðu sína. Arsenal skrifar líka að hann þurfi ekki að fara í aðgerð. Þess í stað er lögð áhersla á stýrða endurhæfingaráætlun. Ekki kemur fram í yfirlýsingu félagsins nákvæmlega hvenær búist er við að Saliba snúi aftur eða nákvæmlega hvað hann meiddist í bakinu. „Nýjar sérfræðirannsóknir eftir að William kom aftur til London í þessari viku hafa staðfest að hann hefur hlotið bakmeiðsli sem krefjast tíma í endurhæfingu. Allir einbeita sér að fullu að því að styðja William til að tryggja að hann komist aftur í sitt besta form eins fljótt og auðið er.“ Þegar aðeins mánuður er í að enska úrvalsdeildin hefjist eru þetta sláandi tíðindi fyrir ríkjandi meistara. Saliba var lykilmaður á gulltímabilinu í fyrra þar sem hann spilaði alla leiki sem hann var tiltækur í. Miðvörðurinn byrjaði sex leiki á HM áður en hann meiddist. Eini leikurinn sem hann spilaði ekki var gegn Noregi í riðlakeppninni þar sem Frakkland ákvað að rótera byrjunarliðinu. Arsenal spilar opnunarleik sinn í ensku úrvalsdeildinni gegn Coventry þann 21. ágúst næstkomandi.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira