KR-ingar unnu en þurfa að treysta á Víkinga í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2016 20:49 Óskar Örn Hauksson kom KR í 2-0 í kvöld. Vísir/Stefán
KR-ingar kláruðu sitt í Egilshöllinni í kvöld en vita það ekki fyrr en seinna í kvöld hvort þeir komast í átta liða úrslit Lengjubikarsins í fótbolta. KR-liðið varð að vinna Grindavík og Vesturbæingar unnu 3-0 sigur. KR vann 3 af 5 leikjum sínum í riðlinum og endaði með 10 stig. Það voru þeir Kennie Knak Chopart og Óskar Örn Hauksson og Pálmi Rafn Pálmason sem skoruðu mörk KR í leiknum, Chopart í fyrri hálfleik, Óskar Örn fimm mínútum fyrir leikslok og Pálmi Rafn í uppbótartíma. Þetta voru fyrstu mörkin hjá Chopart, Óskari Erni og Pálma Rafni í Lengjubikarnum í ár en Hólmbert Aron Friðjónsson er markahæstur hjá KR-liðinu með fjögur mörk. Víkingar hafa unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum og hafa þegar tryggt sér sigur í riðlinum og um leið sæti í átta liða úrslitunum. Skagamenn eru með sjö stig en mæta toppliði Víkinga í kvöld. ÍA kemst upp fyrir KR og í átta liða úrslitin með þriggja marka sigri. KR er með sex mörk í plús og því skipti það miklu máli fyrir Vesturbæjarliðið að skora þessi tvö mörk á lokakaflanum. Þau þýða að Skagamenn þurfa bæði að vinna upp þriggja stiga og þriggja marka forystu KR-inga í leiknum á móti Víkingum. Leikur Víkings og ÍA verður sýndur beint Stöð 2 Sport 3 en Hörður Magnússon mun lýsa leiknum sem fer fram í Egilshöllinni. Upplýsingar um markaskorara í KR-leiknum eru fengnar frá úrslitasíðunni úrslit.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Enski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Handbolti „Þurfum að fara átta okkur á því hversu góðir við erum í körfubolta“ Sport Fleiri fréttir Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Sjá meira