Skoðun

Um brotthvarf Jóns Sigmundssonar af Laugavegi

Björn Teitsson skrifar
Nokkrir punktar um brotthvarf Jóns Sigmundssonar af Laugavegi og frétt á RÚV - Fréttir þar sem verslunareigandi fékk óáreittur að segja að verslun hafi verið á undanhaldi vegna lokunar (sem ætti auðvitað að kallast „opnunar“) Laugavegs á sumrin. Það er nákvæmlega EKKERT sem styður þessa fullyrðingu. Þvert á móti:

1. Flest bendir til þess að verslun blómstri þessar vikur sem lokað er fyrir bílaumferð, nema einmitt frá Snorrabraut til Vatnsstígs, þar sem bílaumferð er enn, óskiljanlega, leyfð. Þetta kom vel fram í verkefni sem Borghildur vann um Laugaveginn.

2. Það virðist vera einkennandi fyrir þá fáu verslunareigendur sem kvarta undan lokun f bílaumferð, að líta aldrei í eigin barm. Þetta eru verslanir sem notast til að mynda ekkert, þá meina ég EKKERT, við nútímamarkaðsfræði, notast ekki við samfélagsmiðla, notast ekki einu sinni við internetið! Ekki í markaðssetningu, kynningu og ekki í verslun. Það gengur einfaldlega ekki í nútímaverslun og kemur bílum ekkert við.

3. Aðgengi fyrir akandi fólk í miðbænum breytist ekkert við lokun f bílaumferð á Laugavegi. Þar eru bílastæði teljandi á fingrum annarrar handar, hvort sem um er að ræða sumar eða vetur. Aðgangur að bílastæðahúsum er sá sami, allt árið um kring. Þar eru ALLTAF laus stæði, og hægt er að sjá hvar eru laus stæði í rauntíma á heimasíðu bílastæðasjóðs.

4. Það þarf engan stjarneðlisfræðing til að átta sig á því að fólk sem er inni í bíl, getur ekki komist inn í verslun. Það skemmir fyrir verslun, að fólk sé inni í bíl. Það greiðir hins vegar fyrir verslun, að fólk sé gangandi og fylli miðbæinn.

5. Fjöldi fólks, ég þar með talinn, hef kosið að versla ekki við verslunareigendur sem eru viljandi að standa í vegi fyrir betra borgarlífi. Ég myndi hiklaust mæla með því við aðra verslunareigendur að standa frekar með fólki, frekar en að standa með einkabílnum. Trúið mér, þið eigið eftir að græða á því.

6. Eigendur Jóns Sigmundssonar tóku að lokum ákvörðun um að selja sína fasteign og koma þar með út úr öllu saman með milljónir í hagnað ef allt er eðlilegt. Það er varla hægt að kvarta yfir því.

Það er eflaust hægt að telja upp fleiri atriði en læt þetta duga í bili. Og í alvöru RÚV, hættið að láta Björn Jón Bragason pródúsera fréttir fyrir ykkur gagnrýnislaust. Það er mjöööög vandræðalegt.

Greinin birtist fyrst á Facebook-síðu Björns sem gaf Vísi leyfi til að birta hana.


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×