Jacob Schoop æfir hjá MLS-liði Orlando City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2016 09:15 Jacob Schoop. Vísir/Andri Marinó
Jacob Schoop, danski miðjumaðurinn sem spilaði með KR í Pepsi-deildinni síðasta sumar, fær tækifæri til að sýna sig og sanna hjá bandaríska MLS-liðinu Orlando City. Hann gæti því spilað í Bandaríkjunum í sumar en ekki á Íslandi. Orlando City er eitt af nýjustu liðunum í MLS-deildinni en stærsta stjarna liðsins er Brasilíumaðurinn Kaka. Hvort Kaka og Jacob Schoop spili saman á miðju Orlando City sumarið 2016 er ekki alveg ljóst ennþáþ Danska fótboltafréttasíðan bold.dk segir frá stöðu mála hjá Jacob Schoop og talar þar við umboðsmann hans, Íslendinginn Guðlaug Tómasson. „Orlando hefur verið að skoða Jacob allar götur síðan að hann spilaði með OB og þeir fylgdust með honum á Íslandi. Adrian Heath, sem er þjálfari hjá Orlando, þekkir Bjarna Guðjónsson, þjálfara KR, síðan þeir voru saman hjá Stoke. Bjarni talaði vel um Jacob Schoop við Adrian," sagði Guðlaugur í viðtalinu við bold.dk. „Orlando hefur æfingar á föstudaginn og þeir ætla að skoða hann. Þetta er frábær tækifæri fyrir hann," sagði Guðlaugur. Jacob Schoop er 27 ára gamall og var með 1 mark og 7 stoðsendingar í 21 leik í Pepsi-deildinni 2015. „Jacob hefur pottþétt áhuga ef Orlando vill fá hann. Hann vill fá að prófa þetta en þetta verður samt að vera góður samningur. Lið í Danmörku og á Norðurlöndum hafa ennþá áhuga á honum," sagði Guðlaugur.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Íslenskt stuðningsfólk varar við svindli í höllinni Handbolti Stærsta blað Slóveníu: Sársaukafull kennslustund Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Slóveníu: Viktor! Gísli! Hallgrímsson! Handbolti Solskjær: Lét mig vinna launalaust Fótbolti Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Íslenski boltinn Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Fótbolti Ísland byrjar á Egyptum og spilar tvo kvöldleiki Handbolti Samfélagsmiðlar yfir sigrinum á Slóveníu: „Viktor Gísli bestur í heimi eða?“ Handbolti Skýrsla Vals: Viktor og virkisveggurinn Handbolti „Hann á eftir að verða betri, áttiði ykkur á því“ Handbolti Fleiri fréttir Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Sjá meira