Erlendir ferðamenn eyddu helmingi meira Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2015 11:03 Erlend kortavelta hjá ferðaskipuleggjendum hefur aukist mikið. Hér er hópur ferðamanna á leið í Silfru. Vísir/Pjetur
Erlend kortavelta hefur aukist gífurlega hér á landi á síðustu árum. Sé veltan í septembermánuðum síðustu fjögurra ára sést að hún hefur aukist um 122 prósent. Síðasta september var hún 13,7 milljarðar króna, sem var 4,3 milljörðum hærra en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Alls greiddu erlendir ferðamenn um þrjá milljarða fyrir gistingu í mánuðinum, sem er aukning um 51 prósent á milli ára. Þar að auki jókst erlend kortavelta hjá innlendum ferðaskipuleggjendum um 94 prósent á milli ára. Sú velta nam tæpum 2,5 milljörðum króna. Samkvæmt Rannsóknarsetrinu bendir þessi þróun á að enn teygist á ferðatímabilinu, sem var að meginhluta til yfir sumarmánuðina þrjá fyrir einungis nokkrum árum. Þá vörðu ferðamenn hæstum upphæðum í fatnað í verslunum í september. Yfir sumarið virðist sem að ferðamenn eyði mestu í dagvöruverslunum, en svo virðist sem að fatnaðurinn nái yfirhöndinni þegar taki að hausta. Mikil aukning hefur eining verið á erlendri kortaveltu í minjagripaverslunum. Hún var alls 326 milljónir króna í mánuðinum og hefur aukist um 68 prósent á milli ára.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Kilroy hafi eitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Sjá meira